Í vor og haust verður rætt um norrænt varnarmálasamstarf í þemaumræðum í norrænu þjóðþingunum.
Umræðurnar, sem haldnar verða að frumkvæði Norðurlandaráðs, eru liður í því að auka áherslu á norrænt samstarf um varnar- og öryggismál og því að ræða norrænt varnarmálasamstarf frá sjónarhóli þingmanna.
Árið 2012 voru samskonar umræður um stjórnsýsluhindranir. Umræðurnar fæddu af sér fjölda tillagna sem nú er unnið með í Norrænu ráðherranefndinni og Norðurlandaráði.
5. júní 2013: Umræður í sænska þinginu Riksdagen um varnar- og öryggismál
6. júní: Umræður í finnska þinginu Riksdagen um varnar- og öryggismál
Október 2013: Umræður í danska þinginu Folketinget um varnar- og öryggismál
Haustið 2013: Umræður í Alþingi Íslendinga um varnar- og öryggismál