Document Actions

Rannsóknir fyrir velferð

Rannsóknir til að auka velferð
Innan ramma áætlunar um sjálfbæra norræna velferð er nú unnið að velferðarrannsóknum auk verkefnis um mönnun umönnunargreinarinnar. Velferðarrannsóknir eru mikilvægar þegar teknar eru ákvarðanir sem leiða til samfélags sem virkar vel.
Norrænar rannsóknir um félagslegan ójöfnuð á heilbrigðis- og velferðarsviðinu
VERKEFNI. Norðurlöndin eru yfirleitt í efstu sætum alþjóðlegra lista yfir samkeppnishæfni og nýsköpunarumhverfi. Norðurlönd eru einnig efst á listum við mælingar á lífsgæðum. Gæðaviðmið sem notuð eru í alþjóðlegum úttektum eru meðal annars heilsa, starfsöryggi og jafnrétti kynjanna.
Að ráða og halda starfsfólki í heilbrigðisgeiranum
UNDIRBÚNINGSVERKEFNI. Eldri borgurum fjölgar á Norðurlöndum. Borið saman við að Norðurlandabúar 65 ára og eldri voru aðeins tíundi hluti íbúanna á sjötta áratugnum, verður þessi hópur, samkvæmt OECD Factbook 2013, líklega um fjórðungur íbúanna árið 2015. Margir þeirra munu þurfa á umönnun að halda.