Document Actions

Um áætlunina sjálfbær norræn velferð

Norræna velferðarlíkanið hefur undanfarin ár notið mikillar alþjóðlegrar athygli. Getan til að sameina hagvöxt og þrótt með skilvirku velferðarkerfi sem fjármagnað er sköttum hefur reynst styrkur í efnahagskreppunni. En norrænu velferðarkerfin eru undir miklu álagi. Hnattvæðingin, fjármálakreppan, lýðfræðilegar breytingar og ný tækni og gildismat almennings gerir allt kröfu um að löndin viðhaldi og þrói áfram velferðarsamfélagið og velferðarþjónustuna.

Norðurlönd eiga í framtíðinni að vera í stakk búin til að bjóða upp á sjálfbæra velferð.

Ljósmyndari
Karen Beate Nøsterud - norden.org

Sjálfbær norræn velferð er áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um nýjar velferðarlausnir. Verkefnið, sem stendur yfir tímabilið 2013-2015, stuðlar að samstarfi um raunverulegar lausnir og samstarfsvettvangi um skoðanaskipti og þekkingarmiðlun.

Sjálfbær norræn velferð er viðbót við það starf sem þegar er unnið í þjóðlöndunum í þá átt að endurnýja velferðina. Mikilvægur hluti af starfi Norrænu ráðherranefndarinnar felst í því að gera miðlun reynslu milli Norðurlanda mögulega.

Með áætluninni er miðað að því að menntun á Norðurlöndum verði atvinnuskapandi, að aðgangur að heilbrigðis- og umönnunarfærni svari þörfum og því að tryggja gæði í heilbrigðis- og heilsuvernd.

Verkefnið sjálfbær norræn velferð verður unnið með aðgerðum og verkefnum á þremur sviðum.

Tengiliður

Siv Merethe Lien
Sími: +45 33 96 02 80
Tölvupóstur:

Emelie Barbou des Places
Sími: +45 29 69 29 38
Tölvupóstur: