Document Actions

Setningarathöfn vegna áætlunarinnar sjálfbær norræn velferð í Kaupmannahöfn

til

Norræna ráðherranefndin er að skipuleggja setningarathöfn vegna áætlunarinnar sjálfbær norræn velferð dagana 28. og 29. ágúst í Kaupmannahöfn. Viðburður sem haldinn verður frá hádegi til hádegis, þar sem öllum sem málið varðar verður boðið að taka þátt og áætlunin verður kynnt í heild sinni um leið og henni verður ýtt úr vör.

Viðburðurinn verður einnig vettvangur umræðna og þekkingarmiðlunar. Þátttakendur munu geta kynnt sér það sem helst er á döfinni á Norðurlöndum hvað varðar sjálfbæra norræna velferð um leið og þeim gefst tækifæri á að ræða við fólk sem starfar að málinu á Norðurlöndum.

Markhópurinn er verkefnisstjórar/starfsmenn verkefna sem heyra undir sjálfbæra norræna velferð, tengiliðir fyrir norræna velferð á Norðurlöndum, fulltrúar embættismannanefnda, fulltrúar norrænna stofnanna og fleiri.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda.

Dagfinn Höybråten, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar býður til ráðstefnu um sjálfbæra norræna velferð.

Dagfinn Höybråten, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar býður til ráðstefnu um sjálfbæra norræna velferð.

Ljósmyndari:
norden.org/Lars Lauritzen

Tengiliður

Siv Merethe Lien
Sími: +45 33 96 02 80
Tölvupóstur:

Emelie Barbou des Places
Sími: +45 29 69 29 38
Tölvupóstur: