Mín Norðurlönd - persónulegar frásagnir af lífinu á norðurslóðum
Hvaða mynd hefur þú af Norðurlöndum? Hvað bindur okkur saman? Við spurðum fjölda einstaklinga í öllum norrænu ríkjunum þeirrar spurningar. Við báðum um svar í formi stuttmyndar, persónulegrar frásagnar um Norðurlönd. Að öðru leyti var orðið, stíllinn og formið frjálst. Þau svör sem við höfum fengið eru eins ólík og þeir einstaklinga sem sendu þau. Norrænir skógar, lífið sem flóttamaður og að vera ungur á Grænlandi eru nokkur þeirra efna sem fjallað er um. Hvað eru þín Norðurlönd?