Document Actions

Stjarna byggingarlistarinnar um frama í gegnum félagslega ábyrgð

Ég þori að veðja að það verður lengst röð til að hlýða á danska arkitektinn Bjarke Ingels á NORDIC COOL 2013, norrænu hátíðinni sem haldin er í Kennedy Center for Performing Arts í Washington DC. Auk þess sem hann verður með stærsta aðdáendahópinn eftir námstefnuna sem hann hélt undir yfirskriftinni Designing Nature.

25/02 2013

Bjarke Ingels heillaði áheyrendur upp úr skónum, alveg frá upphafi.

Ljósmyndari
Bodil Tingsby/norden.org

En hann er einnig kynntur sem stjarna byggingarlistarinnar. Ekki svartklæddur með þykk, stór svört gleraugu, eins og svo margir arkitektar, heldur hirðuleysislega gráklæddur. Örugglega nýlentur að koma frá einhverju af BIG, Bjarke Ingels Groups, verkefninu einhvers staðar í heiminum.

Ekkert af þessu skipti samt máli. Hann töfraði áheyrendur upp úr skónum og eftir fyrirlesturinn mátti heyra hóp arkitektnema segja: „Hvílíkur innblástur! Honum tekst virkilega að gera byggingalist spennandi! Cool!”

Eftir að hafa hlýtt á tveggja tíma glærusýningu um tilbúin verkefni, verkefni í vinnslu og hugmyndir á ýmsum stigum leyfi ég mér að halda því fram að innblástur Ingels komi frá því sem við viljum kalla hið hefðbundna norræna. Án þess að vera heimatilbúið.

Góð sjálfbærni

Hann byrjar á að tala um sjálfbærni, en bætir við að hann telji ekki að nauðsynlegt sé að eitthvað sé vont til að það sé gott. Það er hægt að hanna byggingar sem eru allt í senn sjálfbærar og hugmyndaríkar, praktískar og fallegar. Hann kallar þetta „góða sjálfbærni", og tekur nokkur dæmi: Íbúðahúsið Bjargið í Kaupmannahöfn, Big Pin sem er kenniteikn/sýningarhöll í Phoenix, þar sem steypan kólnar á nóttinni þannig að ekki er þörf á því að kæla hana á daginn.

Seinna verkefnið krefst eigin sýningar. Orkuverið mun ekki losa mengandi efni nema koldíoxið sem ekki verður komist hjá að losa. Í stað þess að fela losunina, mun sérhannaður reykháfur blása frá sér reykhringjum með CO2.

„Hluti af loftslagsvanda okkar felst í því að losun út í andrúmsloftið er ósýnileg. Það sem við ekki sjáum, eigum við erfitt með að taka alvarlega. Nú gerum við mengunina sýnilega og segjum þar með - Björgum loftslagsmálunum!

Einstaklingurinn-samfélagið-náttúran

Bjarke Ingels reynir virkilega að útskýra fyrir bandarískum áheyrendum að það sé hægt að taka tillit til einstaklingsþarfa um leið og tekið er tillit til samfélagslegra þarfa. Í dæmi eftir dæmi lýsir hann því hvernig þeir sem hann vinnur fyrir hafa fengið bæði sérpöntuð landteikn og lausnir sem taka tillit til náttúrunnar. Með því sem hann kallar „þekkingardrifin hönnun" hafa BIG-arkitektarnir fundið lausnir sem byggja jafnt á efnislegum og óefnislegum hugmyndum í Utah, í Vancoover og í New York.

„Ég veit að þið haldið að svona hugmyndir geti bara orðið að veruleika á hálf-sósíalistísku Norðurlöndunum, en við erum jafn miklir einstaklingshyggjumenn og þið. Og, sameiginlegir félagslegir innviðir bjóða upp á stór tækifæri fyrir sjálfbærar einstaklingsmiðaðar lausnir.

Máttur hugmyndarinnar

Ráðhúsið í Tallinn, höfuðborg Eistlands er eitt af húsunum í myndaröð Bjarke og þegar hann segir frá því hvernig tókst að hanna lýðræðislega hringsjá með því að hafa vinnusvæði stjórnmálamannanna sýnileg almenningi fyrir utan, hljómar hann næstum eins og stjórnmálamaður.

„Við arkitektar höfum e.t.v. ekki fjárhagsleg eða stjórnmálaleg völd, en okkar völd felast í hugmyndinni. Og með henni getum við tekið stjórnina á samfélagi framtíðarinnar", segir hann og sýnir hvernig hugmyndin að listasafninu í Nuuk á Grænlandi nær að fanga það sem grænlenskt er og útiloka braggalegar byggingar frá fyrri tímum.

Á árunum milli 30 og 40 verður stafræn tækni sjálfsögð í huga Bjarke Ingels. Gestir í Kaupmannahöfn geta t.d. „appað" sig áfram í skoðanaferð um fjölbreytt Rauða torg, Svarta markað og Græna garð, sem hann hefur skreytt með raunverulegum hlutum frá öllum heiminum, marakóskum gosbrunni, strætisvangaskýli frá Kazakstan, enskri ruslatunnu...

Og markaðssetningin sæmir stjörnu. Eða hvað finnst ykkur um tónlistarmyndband sem gert er til að kynna íbúasvæði sem verið er að skipuleggja á West 57th Street í New York City?!

Tengiliðir

Bodil Tingsby
Sími +45 33 96 03 57
Tölvupóstur bot@norden.org