NORRÆNT FERÐALAG Í GEGNUM TÍMANN Norrænar hagtölur fagna 50 ára afmæli árið 2012. Við fögnum afmælinu með því að beina sjónum að Norðurlöndum allt frá 1962 fram á daginn í dag. Hvað hefur gerst undanfarin 50 ár?
- Færri gifta sig og börnin fæðast seinna og seinna.
- Ungbarnadauði hefur minnkað mikið. En aftur á móti hefur fóstureyðingum fjölgað.
- Fleiri deyja úr krabbameinum. En fólk lifir mikið lengur.
- Fólk flytur núna minna innan landamæra Norðurlanda.
- Neysla áfengis og kjöts hefur aukist um helming.
- Mestur hluti tekna fer í húsnæði.
- Fjöldi nemenda við háskóla á Norðurlöndum hefur meira en fimmfaldast og nú eru kvenstúdentar í meirihluta.
- Flest störf eru nú í þjónustugreinum. Aðeins fáir vinna nú við hefðbundin framleiðslustörf.
- Bæði skattar og opinber neysla hafa aukist verulega.
- Bílum hefur fjölgað nær fimmfalt.
- Tölfræðin sem þetta er byggt á


