Fjöldi ógiftra einstaklinga er mikli meiri á Norðurlöndum í dag(2010) en árið 1962. Fjöldi fráskildra hefur aukist úr u.þ.b. 3 prósent um af íbúafjölda árið 1962 í u.þ.b. 11 prósent í dag.
Konur sem fæða börn verða sífellt eldri. Flestar konur sem eignast börn eru nú á aldrinum 30 - 34 ára. Í upphafi sjöunda áratugar síðustu aldar voru flestar konur sem eignuðust börn á aldrinum 20 - 24 ára.
Það kemur ekki á óvart að ungbarnadauði hefur minnkað mikið frá sjöunda áratugnum. Árið 1961 mældist ungbarnadauði 15,8 til 21,7 á 1000 lifandi fædd börn á Norðurlöndum. Árið 2010 mældist ungbarnadauði 2,2 til 3,4 á 1000 lifandi fædd börn á Norðurlöndum.
Árið 1966 var spá um fólksfjölda á Norðurlöndum fyrir árið 1980 of há. Reiknað var með að 23,3 milljónir manna myndu búa á Norðurlöndunum fimm árið 1980. Þetta gekk ekki eftir þar sem fólksfjöldi á Norðurlöndunum var „aðeins" 22,3 milljónir árið 1980.
Árið 1961 komu flestir innflytjenda til Norðurlanda frá öðrum norrænum ríkjum. Í dag (2010) koma flestir innflytjendur annars staðar að úr Evrópu. Flestir innflytjendur til Norðurlanda koma nú frá Asíu. Hlutfall innflytjenda til Norðurlanda frá Asíu hefur farið úr 1 prósenti í 21 prósent.
Lífslíkur Norðurlandabúa hafa aukist frá sjöunda áratug síðustu aldar, bæði lífslíkur karla og kvenna. Lífslíkur karla hafa aukist um 4,3 ár frá árinu 1961 til 2010. Lífslíkur kvenna hafa aukist enn meira eða 8,9 ár að meðaltali. Aukning lífslíkna er mest meðal bæði karla og kvenna í Finnlandi
Sala á áfengum drykkjum hefur aukist verulega frá upphafi sjöunda áratugar síðustu aldar fram til dagsins í dag. Í flestum landanna hefur salan aukist um helming eða jafnvel þrefaldast. Í Finnlandi og á Íslandi hefur salan fimmfaldast.
Dauðsföll af völdum krabbameins eru mun algengari nú en í byrjun sjöunda áratugs síðustu aldar. Danmörk er með hæsta tíðni dauðsfalla af völdum krabbameins á Norðurlöndum. Ísland þá lægstu.
Sjálfsvígum hefur fækkað í þremur af norrænu ríkjunum, en á Íslandi og í Noregi hefur þeim fjölgað. Sjálfsvígum kvenna hefur einungis fækkað í tveimur löndum, í Danmörku og Svíþjóð. Mest hefur sjálfsvígum fækkað í Danmörku bæði hjá körlum og konum. Þeim hefur fækkað um 30 prósent hjá körlum og nær 60 prósent hjá konum.
Fjöldi fóstureyðinga hefur aukist síðan snemma á sjöunda áratugnum, aðallega vegna þess að fóstureyðingar hafa verið löglegar í öllum norrænu ríkjunum frá því um miðjan áttunda áratug síðustu aldar. Tíðni fóstureyðinga á Norðurlöndum er mest í Svíþjóð, nánast tvisvar sinnum það sem hún er í Finnlandi, þar sem tíðnin er minnst.
Mikill munur er enn á milli landa hvað varðar fjölda heilbrigðisstarfsfólks. En fjöldi heilbrigðisstarfsmanna hefur aukist alls staðar á Norðurlöndum frá upphafi sjöunda áratugarins. Í flestum löndunum hefur fjöldi lækna á 100.000 íbúa þrefaldast. Tannlæknum hefur ekki fjölgað eins mikið.
Hlutfall íbúðarhúsnæðis með fleiri en 4 herbergi að eldhúsi meðtöldu hefur aukist úr 19 prósentum af heildarfjölda árið 1960 í 45 prósent (2010) þegar litið er til Norðurlanda í heild. Flestar stórar íbúðir eru í Noregi, fæstar í Finnlandi.
Í upphafi sjöunda áratugarins var atvinnuleysi á Norðurlöndum lítið miðað við árið 2010 - u.þ.b. 1,4 til 4,3 prósent af vinnubæru fólki. Árið 2010 var atvinnuleysið á bilinu 3,7 til 8,5 prósent af vinnubæru fólki.