Á sjötta áratug síðustu aldar starfaði nær þriðjungur alls vinnuafls við landbúnað, skógrækt og fiskveiðar. Nú starfa aðeins 2,6 prósent vinnubærra manna við þessar greinar. Fækkunin er mest í Finnlandi þar sem nær helmingur íbúa vann við frumgreinarnar á sjötta áratugnum en nú aðeins 4 prósent. Mest fjölgun starfa hefur orðið í opinberri- og einstaklingsþjónustu - aukning úr 17 í 46 prósent.