Í upphafi sjöunda áratugar síðustu aldar voru rúmlega 4.000 kvikmyndahús á Norðurlöndum. Árið 2010 voru þau aðeins 1.000. Fjöldi kvikmyndahúsa á hverja 100.000 íbúa á Norðurlöndum nú er því aðeins 1/5 af því sem hann var í byrjun sjöunda áratugar síðustu aldar. Þetta er aðallega vegna fækkunar kvikmyndahúsa. Fjölgun íbúa skiptir aðeins litlu máli.