Neysla á nauðsynjavörum s.s. hveiti, korni, sykri og kartöflum hefur minnkað á Norðurlöndum á undanförnum 50 árum. Magn kartaflna sem meðal Norðurlandabúinn neytir hefur minnkað úr 80 kg í aðeins 54 kg á mann. Hins vegar neyta Norðurlandabúar nú að jafnaði 80 kg af kjöti miðað við aðeins 61 kg árið 1960.