Á hálfri öld á árunum 1960 til 2010 hefur einkaneysla minnkað, þegar hún er miðuð við hlutfall af vergri landsframleiðslu en opinber neysla hefur aukist. Einkaneysla hefur minnkað mest í Noregi þar sem hún hefur farið úr 59 í 41 prósent af vergri landsframleiðslu. Mesta aukningin í opinberri neyslu varð á Íslandi og í Danmörku, nær 17 prósenta aukning.