Document Actions

Staðreyndir um Álandseyjar

Milli Svíþjóðar og Finnlands eru Álandseyjar með sínar 6757 eyjar. Á Álandseyjum er töluð sænska, en sjálfstjórnarsvæðið er hluti af Finnlandi.

Åland
Ljósmyndari
Freyja Finnsdóttir

Á eyjunum er mikið um kletta og engi en einnig stór svæði vaxin furuskógi. Tæplega níu prósent af landsvæði Álandseyja er ræktanlegt land.

Álandseyjar eru minnsta sjálfstjórnarsvæðið á Norðurlöndum, en þar búa tæplega 28.000 íbúar. Einn þriðji íbúanna býr í höfuðstaðnum Mariehamn. Sænska er opinbert tungumál á Álandseyjum.

Álandseyjar eru hluti af lýðveldinu Finnlandi, en eyjarnar njóta sjálfstjórnar. Á þeim sviðum sem Álandseyjar eru með eigin löggjöf, eru eyjarnar í raun sem sjálfstætt ríki.

Á Álandseyjum er enginn her og landið er hlutlaust. Þing Álandseyja nefnist Lögþing og er æðsta yfirvald svæðisins.

 

Álandseyjar eiga aðild að ESB og evran er gjaldmiðill, eyjarnar njóta þó sérstöðu gagnvart ESB: Til þess að viðhalda hinni mikilvægu tollfrjálsu sölu um borð í skipunum sem sigla milli Finnlands og Svíþjóðar eru Álandseyjar ekki hluti af virðirsaukaskattssamstarfinu.

Siglingar og ferjuumferð, ferþaþjónusta og vinnsla landbúnaðar- og sjávaráfurða eru mikilvægar tekjulindir fyrir Álandseyjar.

Flatarmál 1.552 km2
Stöðuvötn og fallvötn 25 km2
Þurrlendi 1.527 km2
Ræktaðir akrar, grænmetis- og ávaxtaekrur 140 km2
Skóglendi 937 km2
Stærsta stöðuvatn Austur og vestur kyrksundet 2,6 km2
Hæsti tindur Orrdalsklint 129 m
Landamæri 0,5 km (landamæri að Svíþjóð við vitann Märket)
Meðalhiti

janúar -2,5° C

júlí 15,9° C

Meðalhiti (2006)

janúar -2,3° C

júlí 17,6° C

Meðalúrkoma í Mariehamn (1971-1990) 553 mm
Meðalúrkoma í Maríuhöfn (2006) 546 mm
Íbúafjöldi þann 1. janúar 2009 27.456 íbúar
Fjöldi íbúa á ferkílómeter þann 1. janúar 2009
18 íbúar/km2
Íbúafjöldi í höfuðstaðnum þann 30. júní 2009
Sveitarfélagið Maríuhöfn
11.005 íbúar
Þjóðhátíðardagur 9. júní (Sjálfstjórnardagurinn 9. júní 1922)
Stjórnarfar Sjálfstjórn, hluti af lýðveldinu Finnlandi
Þing Lögþingið (30 fulltrúar)
Aðild að ESB Frá 1. janúar 1995 (Ekki aðili að skattabandalagi ESB)
Aðild að NATO Nei
Þjóðhöfðingi (frá september 2009) Tarja Halonen forseti
Leiðtogi ríkisstjórnar( frá október 2009) Viveka Eriksson (Frjálslyndum)
Gjaldmiðill Evra
Opinber heimasíða www.aland.ax
Tengt efni

 

Tengiliður

Helgi Þorsteinsson
Sími +45 33 96 04 59
Tölvupóstur