Staðreyndir um Danmörk
Danmörk liggur syðst Norðurlandanna. Landið sem er lítið samanstendur af mörgum eyjum, það er þéttbýlt og umkringt yndislegum ströndum.
Danmörk er minnst Norðurlandanna fimm. Landið er álíka stórt og Finnmerkurfylki í Noregi. Hins vegar býr Danmörk yfir frjósömu ræktanlegu landi sem er nýtt til hins ítrasta. Meðr 5,5 milljónir íbúa, er Danmörk þéttbýlasta ríkið á Norðurlöndum. Í og í kringum höfuðborgina Kaupmannahöfn búa um það bil 1,2 milljónir manns.
Danmörk er stjórnarskrárlegt konungsríki. Margét II Danadrottning hefur ekki raunverulegt pólitískt vald, og er þingið (Folketing) æðsta vald landsins. Danmörk er aðili að ESB en hefur haldið krónuni sem gjaldmiðli. Landið á einnig aðild að varnarsamstarfi NATO.
Mikilvægustu tekjulindir Damerkur eru olía og aðrir orkugjafar, lyfjaiðnaður, landbúnaðarvörur, skipaútgerð og þjónusta við upplýsinga- og tölvugeirann.
Þjóðarframleiðsla er 29.700 evrur á hvern íbúa (2006)
| Flatarmál | 43.561 km2 |
| Þurrlendi | 42.890 km2 |
|
Ræktað land, garðyrkjusvæði og ávaxtaekrur |
25.329 km2 |
| Skóglendi og skógræktarsvæði | 5.294 km2 |
| Stöðuvötn og fallvötn | 671 km2 |
| Stærsta stöðuvatn | Arresø – 39,5 km2 |
| Hæsti tindur | Yding Skovhøj – 172,5 m |
| Strandlína | 7.314 km |
|
Meðalhiti (1961 - 1990) |
janúar 0,0° C júlí 15,6° C |
|
Meðalhiti (2007) |
janúar 5,0° C júlí 15,7° C |
|
Meðalúrkoma (1961 - 1990) |
712 mm |
| Úrkoma í Kaupmannahöfn (2006) | 823 mm |
| Íbúafjöldi þann 1. janúar 2011 | 5.560.628 |
| Fjöldi íbúa á ferkílómeter 1. janúar 2011 | 129.4 íbúar/km2 |
|
Íbúafjöldi í höfuðborginni 1. janúar 2009 |
Kaupmannahöfn 683.397 |
| Þjóðhátíðardagur | 5. júní (Stjórnarskrárdagurinn 5. júní 1849) |
| Stjórnarfar | Konungsríki |
| Þing | Folketinget (179 fulltrúar) |
| Aðild að ESB | Frá 1. janúar 1973 |
| Aðild að NATO | Frá 4. apríl 1949 |
| Þjóðhöfðingi (í september 2009) | Margrét Þórhildur II Danadrottning |
| Leiðtogi ríkisstjórnar ( í október 2009) | Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra (Vinstri) |
| Gjaldmiðill | Dönsk króna (DKK) |
| Opinber heimasíða | www.denmark.dk |
