Staðreyndir um Finnland
Stöðuvötn og skógar einkenna náttúru Finnlands, sem liggur austan við Svíþjóð. Finnland er einnig þekkt fyrir farsíma, Múmínálfa og hönnun.
Finnland er oftkallað land hinna þúsund vatna, og réttilega svo, því 10 prósent Finnlands er þakið vötnum og ám. Í landinu eru einnig stórir skógar sem þekja nær tvo þriðju hluta þess, og einungis rúmlega sex prósent af landsvæði Finnlands er ræktanlegt.
Í Finnlandi búa tæplega 5,5 milljónir manns, rúmlega ein milljón í og umhverfis höfuðborgina Helsinki.
Sænska og finnska eru bæði opinber tungumáli í Finnlandi. Ástæða þess er að í Finnlandi býr sænskumælandi minnihluti.
Finnland er lýðveldi. Forsetinn, sem kjörinn er í beinni kosningu, hefur raunveruleg völd í utanríkismálum, málefnum ESB og mikilvægum hernaðarlegum ákvörðunum ásamt því að tilnefna æðstu embættismenn. Í öllum öðrum málum er þingið (Riksdagen) æðsta stjórnvald landsins.
Finnland á aðild að ESB og notar evruna sem gjaldmiðil. Landið er ekki aðili að NATO.
Skógvinnsla, tækniframleiðsla og málmiðnaður eru mikilvægustu tekjulindir Finnlands. Finnland er heimsins stærsti farsímaframleiðandi.
Þjóðarframleiðsla er 27.300 evrur á hvern íbúa (2006)
| Flatarmál | 338.424 km2 |
| Þurrlendi | 303.899 km2 |
| Stöðuvötn og fallvötn | 34.526 km2 |
|
Ræktaðir akrar, grænmetis- og ávaxtaekrur |
22.891 km2 |
| Skóglendi | 228.830 km2 |
| Stærsta stöðuvatn | Saimaa 1.377 km2 |
| Hæsti tindur | Halti, Halditjåkko (Haldefjäll) 1.324 m |
| Strandlína | 1.250 km |
|
Meðalhiti í Helsinki (1971 - 2000) |
janúar -4,2° C júlí 17,2° C |
| Meðalhiti í Helsinki (2006) |
janúar -3,6° C júlí 18,9° C |
|
Meðalúrkoma í Helsinki (1971 - 2000) |
643 mm |
| Úrkoma í Helsinki (2005) | 648 mm |
| Íbúafjöldi þann 1. janúar 2009 | 5.326.314 |
|
Fjöldi íbúa á ferkílómeter 1. janúar 2009 |
17,5 íbúar/km2 |
| Íbúafjöldi í höfuðstaðnum 1. janúar 2009 |
(Helsinki/Helsingfors) 576.632 íbúar |
| Þjóðhátíðardagur |
6. desember (Sjálfstæðisdagurinn) |
| Stjórnarfar | Lýðveldi |
| Þing | Eduskunta (Riksdag) (200 sæti) |
| Aðild að ESB | Frá 1. janúar 1995 |
| Aðild að NATO | Nei |
| Þjóðhöfðingi (í september 2009) | Tarja Halonen forseti |
| Leiðtogi ríkisstjórnar ( í október 2009) | Matti Vanhanen forsætisráðherra (Keskusta / Miðjuflokknum) |
| Gjaldmiðill | Evra |
| Opinber heimasíða | www.finland.fi |
