Document Actions

Staðreyndir um Grænland

Íbúar Grænlands eiga rætur sínar að rekja til Mið-Asíu, landið er á meginlandi Norður-Ameríku, en pólitískt séð er það eyja í Evrópu.

Oqaatsut
Ljósmyndari
Silje Bergum Kinsten/norden.org

Grænland er stærsta eyja heims og nær áttatíu prósent landsins er þakið jökli. Íslausa svæðið er nær eins stórt og Svíþjóð, en aðeins mjög lítill hluti þess er ræktanlegt.

Á Grænlandi búa tæplega 57.000 manns og rúmlega 15.000 þeirra búa í höfuðstaðnum Nuuk.

Grænland er hluti konungsríkisins Danmerkur, en hefur sjálfstjórn að miklu leyti, sem var aukin árið 2009. Sjálfstjórnin nær ekki til málefna eins og utanríkis- og varnarmála og gjaldeyrisstefnu.

Grænland er ekki aðili að ESB, en hefur gert sérstaka samninga um fiskveiðar og hefur verið viðurkennt sem landsvæði með sérstök tengsl við ESB.

Sel- og hvalveiðar, fiskveiðar og skotveiðar eru langmikilvægustu tekjulindir Grænlendinga. Ferðaþjónusta fer einnig vaxandi og þar er einnig talsverð námavinnsla.

Þjóðarframleiðsla var 25.000 evrur á hvern íbúa (2006).

Flatarmál 2.166.086 km2
Jöklar 1.755.637 km2
Íslaust svæði 410.449 km2
Hæsti tindur Gunnbjørns Fjeld 3693 m
Strandlína 44.087 km
Landamæri 0 km

Meðalhiti

(1961 - 1990)

Aasiaat

Tasiilaq

 

 

janúar -13,4° C / júlí 5,7° C

janúar -7,5° C / júlí 6,4° C

Meðalhiti (2007)

Aasiaat

Tasiilaq

 

janúar -9,6° C / júlí 8,3° C

janúar -6,9° C / júlí 7,0° C

Meðalúrkoma (1961 - 1990)

Aasiaat

Tasiilaq

 

304 mm

984 mm

Úrkoma (2006)

Aasiaat

Tasiilaq

 

352 mm

742 mm

Íbúafjöldi þann 1. janúar 2011
56.615 íbúar
Fjöldi íbúa á hvern ferkílómetra íslauss svæðis þann 1. janúar 2011 0,14 íbúar/km2
Íbúafjöldi í höfuðstaðnum 1. janúar 2011
Nuuk 15.862
Þjóðhátíðardagur 21. júní (lengsti dagur ársins)
Stjórnarfar Heimastjórn - hluti af konungsríkinu Danmörku
Þing Landsþingið (31 fulltrúar)
Aðild að ESB Frá 1. janúar 1973 til 1. febrúar 1985
Aðild að NATO Frá 1949 (vegna aðildar Danmerkur)
Þjóðhöfðingi (í september 2009) Margrét Þórhildur II Danadrottning
Leiðtogi ríkisstjórnar ( í október 2009) Kuupik Kleist (Inuit Ataqatigiit)
Gjaldmiðill Dönsk króna (DKK)
Opinber heimasíða http://dk.nanoq.gl/

1 Sveitarfélagið Nuuk

Tengt efni

 

Tengiliður

Helgi Þorsteinsson
Sími +45 33 96 04 59
Tölvupóstur