Staðreyndir um Ísland
Norðarlega í Atlantshafinu er eldfjallaeyjan Ísland með heitum uppsprettum og dramatískri náttúru.
Ísland er 2,5 sinnum stærra en Danmörk en aðeins rúmlega eitt prósent landsins er ræktanlegt. Á landinu eru stór hrauni þakin svæði og margir jöklar. Á landinu búa um 308.000 íbúar og býr rúmlega helmingur þeirra í höfuðborginni Reykjavík.
Ísland er lýðveldi með forseta sem kosinn er í beinni kosningu. Forsetinn tilnefnir formlega forsætisráðherrann. Alþíngi er æðsta stjórnvald landsins.
Ísland á ekki aðild að ESB, en tekur þátt í evrópska efnahagssamstarfinu í gegnum EES-samninginn. Ísland er aðili að varnarsamstarfi NATO.
Fiskveiðar og fiskafurðir eru enn mikilvægasta tekjulind Íslendinga. Þar á eftir kemur útflutningur á áli og járnblendi. Undanfarin ár hefur verið vöxtur á sviðum eins og til að mynda líftækni, hugbúnaðargerð og ferðaþjónustu.
Þjóðarframleiðsla var 31.900 evrur á hvern íbúa (2006)
| Flatarmál | 103.300 km2 |
| Jöklar | 11.000 km2 |
| Stöðuvötn og fallvötn | 2.700 km2 |
| Íslaust landsvæði | 89.600 km2 |
| Ræktaðir akrar, grænmetis- og ávaxtaekrur | 1.290 km2 |
| Skóglendi | 1.524 km2 |
| Stærsta stöðuvatn | Þingvallavatn 82 km2 |
| Strandlína | 4.970 km |
| Hæsti tindur | Hvannadalshnúkur 2.110 m |
| Meðalhiti í Reykjavík (1961 - 1990) |
janúar -0,5° C júlí 10,6° C |
| Meðalhiti í Reykjavík (2006) |
janúar 2,0° C júlí 11,1° C |
| Meðalúrkoma í Reykjavík (1961 - 1990) | 799 mm |
| Úrkoma í Reykjavík (2007) | 890 mm |
| Íbúafjöldi þann 1. janúar 2008 | 319.368 íbúar |
| Fjöldi íbúa á hvern ferkílómetra íslauss svæðis þann 1. janúar 2008 | 3,6 íbúar/km2 |
|
Íbúafjöldi í höfuðborginni 1. janúar 2008 |
Sveitarfélagið Reyjavík 119.547 íbúar |
| Þjóðhátíðardagur | 17. júní (Fullveldisdagurinn 17. júní 1944) |
| Stjórnarfar | Lýðveldi |
| Þing | Alþingi (63 þingmenn) |
| Aðild að ESB | Nei |
| Aðild að EES | Frá 1. janúar 1994 |
| Aðild að NATO | Frá 4. apríl 1949 |
| Þjóðhöfðingi (í september 2009) | Ólafur Ragnar Grímsson forseti |
| Pólitískur leiðtogi |
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra (Samfylkingunni) |
| Gjaldmiðill | Íslensk króna (ISK) |
| Opinber heimasíða | www.iceland.is |
