Staðreyndir um Noreg
Olía og fjöll eru fyrir marga samheiti fyrir Noreg. Ægifögur náttúra teygir sig frá strandsvæðum í suðri í gegnum stór fjallasvæði í Mið-Noregi í miðnætursólina á Norðurkollu.
Í Noregi eru stór fjall-, skóg- og hálendissvæði en þess vegna eru einungis rúmlega þrjú prósent landsins er ræktanlegt. Í Noregi búa u.þ.b. 4,7 milljónir manns, þar af rúmlega ein milljón í og umhverfis höfuðborgina Ósló.
Noregur er stjórnarskrárlegt konungsríki. Haraldur V Noregskonungur hefur ekki raunveruleg pólitísk völd, og Stórþingið er æðsta vald landsins. Noregur á ekki aðild að ESB, en tekur þátt í evrópska efnahagssamstarfinu í gegnum EES-samninginn. Noregur er aðili að NATO.
Stærsta tekjulind Norðmanna er vinnsla og útflutningur á olíu og náttúrugasi sem dælt er upp af hafsbotni. En málmiðnaður, skipaútgerð og ferðaþjónusta eru einnig mikilvæg fyrir efnahag landsins.
Þjóðarframleiðsla var 43.900 evrur á hvern íbúa (2006).
| Flatarmál1 | 323.782 km2 |
| Stöðuvötn og fallvötn | 18.312 km2 |
|
Þurrlendi |
305.470 km2 |
|
Ræktaðir akrar, grænmetis- og ávaxtaekrur |
8.491 km2 |
| Skóglendi | 120.000 km2 |
| Stærsta stöðuvatn | Mjøsa 362 km2 |
| Hæsti tindur | Galdhøpiggen 2.469 m |
| Strandlína, meginland | 25.148 km |
| Landamæri | 2.562 km (landamæri að Svíþjóð): 1.630 km, að Finnlandi: 736 km, að Rússlandi: 196) |
| Meðalhiti (1961 - 1990) | janúar -4,3° C júlí 16,4° C |
| Meðalhiti í Ósló (2006) | janúar -6,3° C júlí 17,7° C |
| Meðalúrkoma í Ósló (1961 - 1990) | 763 mm |
| Úrkoma í Ósló (2006) | 930 mm |
| Íbúafjöldi þann 1. janúar 2009 | 4.799.252 íbúar |
| Fjöldi íbúa á ferkílómeter 1. janúar 20091 | 15,7 íbúar/km2 |
| Íbúafjöldi í höfuðstaðnum 1. janúar 2009 |
Ósló (sveitarfélagið Ósló) 575.475 íbúar |
| Þjóðhátíðardagur | 17. maí (Stjórnarskrárdagurinn 17. maí 1814) |
| Stjórnarfar | Konungsríki |
| Þing | Stórþingið (169 fulltrúar) |
| Aðild að ESB | Nei |
| Aðild að EES | Frá 1. janúar 1994 |
| Þjóðhöfðingi (í september 2009) | Haraldur V konungur |
| Leiðtogi ríkisstjórnar (í september 2009) | Jens Stoltenberg forsætisráðherra (Jafnaðarmannaflokknum) |
| Gjaldmiðill | Norsk króna (NOK) |
| Opinber heimasíða | www.norge.no |
1 Svalbarði og Jan Mayen ekki meðtalin
