Staðreyndir um Svíþjóð
Svíþjóð er stærst Norðurlandanna með flesta íbúa. Svíþjóð er af mörgum þekkt fyrir framleiðslu á gæðabílum, járni og stáli.
Stöðuvötn og fallvötn þekja nær tíu prósent landrýmis í Svíþjóð. Í landinu eru einnig gífurlegir barrskógar, en einnig 27.000 ferkílómetrar af ræktanlegu landi
Svíþjóð er einnig fjölmennasta norræna ríkið, þar búa rúmlega 9,2 milljónir manna. Nær tvær milljónir þeirra búa á Stokkhólmssvæðinu. Norðurhluti landsins er strjálbýll.
Svíþjóð er stjórnarskrárlegt konungsríki. Karl Gústaf XVI hefur ekki raunveruleg pólitísk völd, og þingið (Riksdagen) er æðsta vald landsins.
Svíþjóð er aðili að ESB en hefur haldið krónuni sem gjaldmiðli. Landið er ekki aðili að NATO.
Svíar flytja út mikið að vörum og þjónustu. Helstu útflutningsvörurnar eru raftæki, vélar, bílar, pappír, járn og stál.
Þjóðarframleiðsla er 28.200 evrur á hvern íbúa (2006)
| Flatarmál1 | 450.295 km2 |
| Stöðuvötn og fallvötn | 39.960 km2 |
|
Ræktaðir akrar, garðyrkjusvæði og ávaxtarækt |
26.305 km2 |
| Skóglendi og skógræktarsvæði | 227.250 km2 |
| Stærsta stöðuvatn | Vänern 5.490 km2 |
| Hæsti tindur | Kebnekaise 2.111 m |
| Strandlína, meginland | 11.530 km |
| Landamæri | 2.205 km (landamæri að Finnlandi: 586 km, að Noregi 1.619 km) |
|
Meðalhiti í Stokkhólmi (1970 - 2000) |
janúar -1,7° C júlí 17,6° C |
| Meðalhiti í Stokkhólmi (2006) | janúar -2,3° C júlí 20,8° C |
|
Meðalúrkoma í Stokkhólmi (1970 - 2000) |
547 mm |
| Úrkoma í Stokkhólmi (2006) | 549 mm |
| Íbúafjöldi þann 1. janúar 2009 | 9.256.347 íbúar |
| Fjöldi íbúa á ferkílómeter 1. janúar 2009 | 22,6 íbúar/km2 |
|
Íbúafjöldi í höfuðborginni 1. janúar 2009 |
Sveitarfélagið Stokkhólmur 810.120 |
| Þjóðhátíðardagur | 6. júní (Sænski fánadagurinn) |
| Stjórnarfar | Konungsríki |
| Þing | Riksdag (349 sæti) |
| Aðild að ESB | Frá 1. janúar 1995 |
| Aðild að NATO | Nei |
| Þjóðhöfðingi (í september 2009) | Carl XVI Gustaf konungur |
| Leiðtogi ríkisstjórnar ( í október 2009) | Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra (Hófsamir) |
| Gjaldmiðill | Sænsk króna (SEK) |
| Opinber heimasíða | www.sweden.se |
1 Þar með talið stærri stöðuvötn, en frátalið svæðið frá ströndinni að landamærum, 81 502 km2
