Milli Svíþjóðar og Finnlands eru Álandseyjar með sínar 6757 eyjar. Á Álandseyjum er töluð sænska, en sjálfstjórnarsvæðið er hluti af Finnlandi.
Á eyjunum er mikið um kletta og engi en einnig stór svæði vaxin furuskógi. Aðeins tæplega níu prósent af landsvæði Álandseyja er ræktanlegt land.
Álandseyjar eru minnsta norræna sjálfstjórnarsvæðið með 28.000 íbúa. Þriðjungur íbúanna býr í höfuðborginni Maríuhöfn. Sænska er opinbert tungumál á Álandseyjum.
Álandseyjar eru hluti af lýðveldinu Finnlandi, en eyjarnar njóta sjálfstjórnar. Á þeim sviðum sem Álandseyjar eru með eigin löggjöf, eru eyjarnar í raun sem sjálfstætt ríki.
Á Álandseyjum er enginn her og landið er hlutlaust. Þing Álandseyja nefnist Lögþing og er æðsta yfirvald svæðisins.
Álandseyjar eru aðili að ESB og gjaldmiðillinn er evra, en sambandið við ESB er skilgreint í sérstakri bókun: til þess að viðhalda mikilvægri skattfrjálsri sölu á ferjum sem sigla milli Finnlands og Svíþjóðar standa Álandseyjar utan virðisaukasamstarfsins.
Siglingar og ferjuumferð, ferðaþjónusta og vinnsla landbúnaðar- og sjávarafurða eru mikilvægar tekjulindir fyrir Álandseyjar.
| Flatarmál | 1,580 km2 |
| Stöðuvötn og fallvötn | 27 km2 |
| Þurrlendi | 1,553 km2 |
| Ræktaðir akrar, grænmetis- og ávaxtaekrur | 139 km2 |
| Skóglendi | 937 km2 |
| Stærsta stöðuvatn | Austur og vestur Kyrksundet 2.6 km2 |
| Hæsti tindur | Orrdalsklint 129 m |
| Landamæri | 0,5 km (landamæri að Svíþjóð við vitann Märket) |
| Meðalhiti |
janúar -2,5° C júlí 15,9° C |
| Meðalúrkoma í Maríuhöfn (2006) | 546 mm |
| Íbúafjöldi þann 1. janúar 2012 | 28 355 |
| Fjöldi íbúa á ferkílómeter þann 1. janúar 2011 | 18.3 íbúar/km2 |
| Íbúafjöldi í höfuðstaðnum (2010) | Sveitarfélagið Maríuhöfn 11.263 íbúar |
| Þjóðhátíðardagur | 9. 9. júní (Sjálfstjórnardagurinn 9. júní 1922) |
| Stjórnarfar | Sjálfstjórn, hluti af lýðveldinu Finnlandi |
| Þing | Lögþingið (30 fulltrúar) |
| Aðild að ESB | Frá 1. janúar 1995 (Ekki aðili að skattabandalagi ESB) |
| Aðild að NATO | Nei |
| Þjóðhöfðingi (frá mars 2012) | Sauli Niinistö, forseti (Einingarflokknum) |
| Leiðtogi ríkisstjórnar (nóvember 2011) | Camilla Gunell (Jafnaðarmannaflokknum) |
| Gjaldmiðill: | Evra |
| Opinber heimasíða | www.aland.ax |
| Opinbert tungmál | Sænska |