Danmörk liggur syðst Norðurlandanna. Landið sem er lítið samanstendur af mörgum eyjum, það er þéttbýlt og umkringt yndislegum ströndum.
Danmörk er minnst Norðurlandanna fimm. Landið er álíka stórt og Finnmerkurfylki í Noregi. Hins vegar býr Danmörk yfir frjósömu ræktanlegu landi sem er nýtt til hins ítrasta. Með 5,5 milljónir íbúa, er Danmörk þéttbýlasta ríkið á Norðurlöndum. Í og í kringum höfuðborgina Kaupmannahöfn búa um það bil 1,2 milljónir manns.
Danmörk er stjórnarskrárlegt konungsríki. Margrét II Danadrottning hefur ekki raunverulegt pólitískt vald, og er þingið (Folketing) æðsta vald landsins. Danmörk er aðili að ESB en hefur haldið krónunni sem gjaldmiðli. Landið á einnig aðild að varnarsamstarfi NATO.
Mikilvægustu tekjulindir Damerkur eru olía og aðrir orkugjafar, lyfjaiðnaður, landbúnaðarvörur, skipaútgerð og þjónusta við upplýsinga- og tölvugeirann.
Þjóðarframleiðsla er 29.700 evrur á hvern íbúa (2006)
| Flatarmál | 43,561 km2 |
| Þurrlendi | 42,890 km2 |
|
Ræktað land, garðyrkjusvæði og ávaxtaekrur |
25,329 km2 |
| Skóglendi og skógræktarsvæði | 5,294 km2 |
| Stöðuvötn og fallvötn | 671 km2 |
| Stærsta stöðuvatn | Arresø – 39,5 km2 |
| Hæsti tindur | Yding Skovhøj – 172,5 m |
| Strandlengja | 7,314 km |
|
Meðalúrkoma (1961 - 1990) |
712 mm |
| Meðalúrkoma í Kaupmannahöfn (2006) | 823 mm |
| Íbúafjöldi þann 1. janúar 2012 | 5.580.516. |
| Fjöldi íbúa á ferkílómeter 01.01.2012 | 130,1 íbúar/km2 |
|
Íbúafjöldi í höfuðborginni 1. janúar 2012 |
1 213 822 (Kaupmannahöfn og úthverfi) 1 |
| Þjóðhátíðardagur | 5. 5. júní (Stjórnarskrárdagurinn 5. júní 1849) |
| Stjórnarfar | Konungsríki |
| Þing | Folketinget (179 fulltrúar) |
| Aðild að ESB | Frá 01.01.73 |
| Aðild að NATO | Frá 4. apríl 1949 |
| Þjóðhöfðingi | Margrét Þórhildur II Danadrottning |
| Leiðtogi ríkisstjórnar (september 2011) | Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra (Jafnaðarmannaflokknum) |
| Gjaldmiðill: | Dönsk króna |
| Opinber heimasíða | www.denmark.dk |
| Opinbert tungmál | Danska |
1) Sveitarfélögin Kaupmannahöfn, Frederiksberg, Albertslund, Brøndby, Gentofte, Gladsaxe, Glostrup, Herlev, Hvidovre, Lyngby-Taarbæk, Rødovre, Tårnby og Vallensbæk og þéttbýlissvæði Ballerup, Rudersdal, Furesø, Ishøj By og Greve Strand.