Document Actions

Staðreyndir um Finnland

Stöðuvötn og skógar einkenna víðerni Finnlands. Finnland er einnig þekkt fyrir farsíma, Múmínálfa og hönnun.

Ljósmyndari
Søren Sigfusson/norden.org

Finnland er oft kallað land hinna þúsund vatna, og réttilega svo, því 10 prósent Finnlands eru þakin vötnum og ám Í landinu eru einnig stórir skógar sem þekja nær tvo þriðju hluta þess. Einungis sex prósent af landsvæði Finnlands er ræktanlegt.

Í Finnlandi búa tæplega 5,5 milljónir manns, rúmlega ein milljón í og umhverfis höfuðborgina Helsinki.

Sænskumælandi minnihluti býr í Finnlandi, og því eru finnska og sænska bæði opinber tungumál.

Finnland er lýðveldi. Forsetinn, sem kjörinn er í beinni kosningu, hefur raunveruleg völd í utanríkismálum, málefnum ESB og mikilvægum hernaðarlegum ákvörðunum. Í öllum öðrum málum er þingið (Riksdagen) æðsta stjórnvald landsins.

Finnland á aðild að ESB og notar evruna sem gjaldmiðil. Landið er ekki aðili að varnarsamstarfi NATO.

Skógvinnsla, tækniframleiðsla og málmiðnaður eru mikilvægustu tekjulindir Finnlands. Finnland er heimsins stærsti farsímaframleiðandi.

Þjóðarframleiðsla er 27.300 evrur á hvern íbúa (2006)

Flatarmál 338,440 km2
Þurrlendi 303,898 km2
Stöðuvötn og fallvötn 34,534 km2

Ræktaðir akrar, grænmetis- og ávaxtaekrur

22,897 km2
Skóglendi 227,767 km2
Stærsta stöðuvatn Saimaa 1.377 km2
Hæsti tindur Mount Haltia 1.324 m
Strandlína, meginland 6.308 km
Meðalhiti í Helsinki (2006)

janúar -3.6° C

júlí 18.9° C

Meðalúrkoma í Helsinki (2005) 648 mm
Íbúafjöldi þann 1. janúar 2012 5,401,267.

Fjöldi íbúa á ferkílómeter 01.01.2012

17,8 íbúar/km2
Íbúafjöldi í höfuðborginni þann 1. janúar 2012

1.059.631 íbúar (Helsinki og úthverfi)1

Þjóðhátíðardagur

6. 6. desember (Sjálfstæðisdagurinn)

Stjórnarfar Lýðveldi
Þing Eduskunta (Riksdag) (200 sæti)
Aðild að ESB Frá 01.01.95
Aðild að NATO Nei
Þjóðhöfðingi (frá mars 2012) Sauli Niinistö, forseti
Leiðtogi ríkisstjórnar (júní 2011) Jyrki Katainen forsætisráðherra (Kokoomus)
Gjaldmiðill: Evra
Opinber heimasíða www.finland.fi
Opinber tungumál Finnska og sænska

1) Helsinki, Espoo (Esbo), Kauniainen (Grankulla) og Vantaa (Vanda)

Tengiliður

Marita Hoydal
Sími: 29692915
Tölvupóstur: