Document Actions

Staðreyndir um Ísland

Norðarlega í Atlantshafinu er eldfjallaeyjan Ísland með heitum uppsprettum og dramatískri náttúru.

Ljósmyndari
Karin Beate Nøsterud/norden.org

Ísland er 2,5 sinnum stærra en Danmörk en aðeins rúmlega eitt prósent landsins er ræktanlegt. Á landinu eru stór hrauni þakin svæði og margir jöklar. Á landinu búa um 308.000 íbúar og býr rúmlega helmingur þeirra í höfuðborginni Reykjavík.

Ísland er lýðveldi með forseta sem kosinn er í beinni kosningu. Forsetinn tilnefnir formlega forsætisráðherrann. Alþingi er æðsta stjórnvald landsins.

Ísland á ekki aðild að ESB, en tekur þátt í evrópska efnahagssamstarfinu í gegnum EES-samninginn. Ísland aðili að varnarsamstarfi NATO.

Fiskveiðar og fiskafurðir eru enn mikilvægasta tekjulind Íslendinga. Þar á eftir kemur útflutningur á áli og járnblendi. Undanfarin ár hefur verið vöxtur á sviðum eins og til að mynda líftækni, hugbúnaðargerð og ferðaþjónustu.

Þjóðarframleiðsla er 31.900 evrur á hvern íbúa (2006)

Flatarmál 103.440 km2
Jöklar 10.800 km2
Stöðuvötn og fallvötn 2.560 km2
Íslaust svæði 90.080 km2
Ræktaðir akrar, grænmetis- og ávaxtaekrur 1.290 km2
Skóglendi 1,212 km2
Stærsta stöðuvatn Þingvallavatn 82 km2
Strandlengja 6.088 km
Hæsti tindur Hvannadalshnúkur 2 110 m
Úrkoma í Reykjavík (2007) 890 mm
Íbúafjöldi 01.01.12 319.575 íbúar.
Fjöldi íbúa á hvern ferkílómetra íslauss svæðis 01.01.12 3.5 íbúar/km2

Íbúafjöldi í höfuðborginni

1. janúar 2012

203.594 íbúar Reykjavík (sveitarfélagið)1.

Þjóðhátíðardagur 17. 17. júní (Fullveldisdagurinn 17. júní 1944)
Stjórnarfar Lýðveldi
Þing Alþingi
(63 fulltrúar)
Aðild að ESB Nei
Aðild að EES Frá 01.01.1994
Aðild að NATO Frá 4. apríl 1949
Þjóðhöfðingi ( í september 2009) Ólafur Ragnar Grímsson forseti
Pólitískur leiðtogi Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra (Samfylkingunni)
Gjaldmiðill: Íslensk króna (ISK)
Opinber heimasíða www.iceland.is
Opinbert tungmál

Íslenska

1)Reykjavik, Kópavogur, Seltjarnarnes, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Kjósarhreppur og Sveitarfélagið Álftanes

Tengiliður

Marita Hoydal
Sími: 29692915
Tölvupóstur: