Olía og fjöll eru fyrir marga samheiti fyrir Noreg. Ægifögur náttúra teygir sig frá strandsvæðum í suðri í gegnum stór fjallasvæði í Mið-Noregi í miðnætursólina á Norðurkollu.
Í Noregi eru stór fjall-, skóg- og hálendissvæði en þess vegna eru einungis rúmlega þrjú prósent landsins er ræktanlegt. Í Noregi búa u.þ.b. 4,7 milljónir manns, þar af rúmlega ein milljón í og umhverfis höfuðborgina Ósló.
Noregur er stjórnarskrárlegt konungsríki. Haraldur V Noregskonungur hefur ekki raunveruleg pólitísk völd, og Stórþingið er æðsta vald landsins. Noregur á ekki aðild að ESB, en tekur þátt í evrópska efnahagssamstarfinu í gegnum EES-samninginn. Noregur er aðili að varnarsamstarfi NATO.
Stærsta tekjulind Norðmanna er vinnsla og útflutningur á olíu og náttúrugasi sem dælt er upp af hafsbotni. En málmiðnaður, skipaútgerð og ferðaþjónusta eru einnig mikilvæg fyrir efnahag landsins.
Þjóðarframleiðsla er 43.900 evrur á hvern íbúa (2006)
| Flatarmál1 | 323,787 km2 |
| Stöðuvötn og fallvötn | 18,312 km2 |
|
Þurrlendi |
305,470 km2 |
|
Ræktaðir akrar, grænmetis- og ávaxtaekrur |
8,215 km2 |
| Skóglendi | 123,840 km2 |
| Stærsta stöðuvatn | Mjøsa 365 km2 |
| Hæsti tindur | Galdhøpiggen 2.469 m |
| Strandlína, meginland | 28.953 km |
| Landamæri | 2.562 km (landamæri að Svíþjóð: 1,630 km, að Finnlandi: 736 km að Rússlandi: 196) |
| Jöklar | 3,133 km2 |
| Íbúafjöldi þann 1. janúar 2012 | 4985870 íbúar. |
| Fjöldi íbúa á ferkílómeter1 01.01.2012 | 16.5 íbúar/km2 |
| Íbúafjöldi í höfuðborginni þann 1. janúar 2012 |
1169539 íbúar. (Sveitarfélagið Ósló)2 |
| Þjóðhátíðardagur | 17. 17. maí (Stjórnarskrárdagurinn 17. maí 1814) |
| Stjórnarfar | Konungsríki |
| Þing | Stortinget (169 fulltrúar) |
| Aðild að ESB | Nei |
| Aðild að EES | Frá 1. janúar 1994 |
| Þjóðhöfðingi ( í september 2009) | Haraldur V konungur |
| Leiðtogi ríkisstjórnar (í september 2009 | Jens Stoltenberg forsætisráðherra (Jafnaðarmannaflokknum) |
| Gjaldmiðill: | Norsk króna (NOK) |
| Opinber heimasíða | www.norge.no |
| Opinbert tungmál | Norska |
1) Fyrir utan Svalbarða og Jan Mayen
2) Sveitarfélagið Ósló og Akerhus-sýsla.