Svíþjóð er stærst Norðurlandanna með flesta íbúa. Svíþjóð er af mörgum þekkt fyrir framleiðslu á gæðabílum, járni og stáli.
Stöðuvötn og fallvötn þekja nær 10% landrýmis í Svíþjóð. Í landinu eru einnig gífurlegir barrskógar, en einnig 27.000 ferkílómetrar af ræktanlegu landi.
Svíþjóð er einnig fjölmennasta norræna ríkið, þar búa rúmlega 9,2 milljónir manna. Nær tvær milljónir þeirra búa á Stokkhólmssvæðinu. Norðurhluti landsins er strjálbýll.
Svíþjóð er stjórnarskrárlegt konungsríki. Karl Gústaf XVI hefur ekki raunveruleg pólitísk völd, og þingið (Riksdagen) er æðsta vald landsins.
Svíþjóð er aðili að ESB en hefur haldið krónuni sem gjaldmiðli. Landið er ekki aðili að varnarsamstarfi NATO.
Svíar flytja út mikið að vörum og þjónustu. Helstu útflutningsvörurnar eru raftæki, vélar, bílar, pappír, járn og stál.
Þjóðarframleiðsla er 28.200 evrur á hvern íbúa (2006)
| Flatarmál1 | 450,295 km2 |
| Stöðuvötn og fallvötn | 39,960 km2 |
|
Ræktaðir akrar, grænmetis- og ávaxtaekrur |
26,330 km2 |
| Skóglendi og skógræktarsvæði | 282,760 km2 |
| Stærsta stöðuvatn | Vänern 5.648 km2 |
| Hæsti tindur | Kebnekaise 2.106 m |
| Strandlína, meginland | 11,530 km |
| Landamæri | 2.205 km (landamæri að Finnlandi: 586 km, að Noregi 1.619 km) |
| Jöklar | 283 km2 |
| Íbúafjöldi þann 1. janúar 2012 | 9482855 íbúar. |
| Fjöldi íbúa á ferkílómeter 01.01.2012 | 23.1 íbúar/km2 |
|
Íbúafjöldi í höfuðborginni 1. janúar 2012 |
2.091.473 íbúar í Stokkhólmi (sveitarfélagið)2. |
| Þjóðhátíðardagur | 6. 6. júní (Sænski fánadagurinn) |
| Stjórnarfar | Konungsríki |
| Þing | Riksdag (349 fulltrúar) |
| Aðild að ESB | Frá 01.01.95 |
| Aðild að NATO | Nei |
| Þjóðhöfðingi ( í september 2009) | Carl XVI Gustaf konungur |
| Leiðtogi ríkisstjórnar ( í október 2009) | Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra (Hófsamir) |
| Gjaldmiðill: | Sænsk króna (SEK) |
| Opinber heimasíða | www.sweden.se |
| Opinbert tungmál | Sænska |
1) Þar með talið stærri stöðuvötn, en frátalið svæðið frá ströndinni að landamærum, 81 502 km2
2) Stokkhólmur, Upplands Väsby, Vallentuna, Österåker, Värmdö, Järfälla, Ekerö, Huddinge, Botkyrka, Salem, Haninge, Tyresö, Upplands-Bro, Nykvarn, Täby, Danderyd, Sollentuna, Södertälje, Nacka, Sundbyberg, Solna, Lidingö, Vaxholm, Norrtälje, Sigtuna og Nynäshamn.