Fáni Færeyja
Þjóðfáni Færeyja, sem einnig nefnist Merkið, byggir á danska fánanum Dannebrog. Færeyskir námsmenn í Kaupmannahöfn hönnuðu fánann sem var dreginn að húni í fyrsta sinn í Færeyjum árið 1919. Fáninn var fyrst viðurkenndur af Bretum í seinni heimsstyrjöldinn þann 25. apríl 1940. Hvítur grunnurinn táknar heiðan himinn og hvítfyssandi öldur sem mæta ströndinni. Rauða og bláa litinn er að finna á hefðbundnum færeyskum hálsklút og litirnir eru einnig ábending um tengslin við Ísland og Noreg, en fánar þeirra nota sömu liti.
sækja .JPG útgáfu af fána Færeyja
sækja .EPS útgáfu af fána Færeyja
Opinberi rauði liturinn er pantone 032 sem samsvarar nokkurn veginn stafrænu litunum:
R:244 G41 B:65
C:0 M:96 Y:74 K:0
Opinberi blái liturinn er pantone 300 sem samsvarar nokkurnn veginn starfrænu litunum:
R:0 G:103 B:197
C:100 M:56 Y:2 K:0
Viðmiðsmálin í lengdinni eru: 6,1,2,1,12
Viðmiðsmálin í hæðinni eru: 6,1,2,1,6
