Fáni Grænlands
Thue Christiansen hannaði grænlenska fánann sem samþykktur var þann 21. júní 1985. Fáni Grænlands nefnist Erfalasorput, sem þýðir „fáninn okkar". Rauði liturinn nefnist Aappalaartoq („rauði") og er hann notaður bæði í grænlenska og danska fánanum. Rauði og hvíti liturinn tákna mörg hundruð ára tengsl við Danmörku. Hringurinn í miðju fánans á að tákna sólina sem sest við sjóndeildarhringinn og ljósið og hitann sem snúa aftur á miðju sumri. Sú staðreynd að á grænlenska fánanum er ekki kross, sýnir greinilega stjórnmálalegt frelsi Grænlands og samkennd með öðrum Inúítum á norðurskautssvæðinu.
sækja .JPG útgáfu af fána Grænlands
sækja .EPS útgáfu af fána Grænlands
Opinberi rauði liturinn er pantone 032 sem samsvarar nokkurn veginn stafrænu litunum:
R:244 G41 B:65
C:0 M:96 Y:74 K:0
