Samíski fáninn
Byrjað var að nota samíska fánann árið 1986, en hann var ekki viðurkenndur sem opinber fáni fyrr en þann 15. ágúst 1992. Samíski fáninn er notaður af Sömum í Lapplandi, en svæðið nær til Norður-Noregs, Norður-Svíþjóðar, Norður-Finnlands og lítils hluta Rússlands. Astrid Båhl hannaði fánann.
Rauði hluti hringsins táknar sólina og sá blái táknar tunglið. Rauði, blái, græni og guli liturinn eru upprunnir í samíska þjóðbúningnum. Græni liturinn táknar náttúruna, blái liturinn vatnið, sá rauði eldinn og guli liturinn sólina.
sækja .JPG útgáfu af samíska fánanum
sækja .EPS útgáfu af samíska fánanum
Opinberi guli liturinn er pantone 116C sem samsvarar nokkurn veginn stafrænu litunum:
R:255 G:206 B:0
C:1 M:18 Y:100 K:0
Opinberi blái liturinn er pantone 286C sem samsvarar nokkurn veginn stafrænu litunum:
R:0 G:53 B:173
C:100 M:83 Y:6 K:2
Opinberi græni liturinn er pantone 356C sem samsvarar nokkurn veginn stafrænu litunum:
R:0 G:114 B:41
C:100 M:28 Y:100 K:19
Opinberi rauði liturinn er pantone 485C sem samsvarar nokkurn veginn stafrænu litunum:
R:220 G:36 B:31
C:8 M:98 Y:100 K:1
