Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á dönsku.
- Info
Kalender for socialpolitik og velfærd
-
Jafnréttisráðherrar Norðurlanda taka þátt í Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 2012 (CSW)
-
Dagsetning
Feb 27, 2012
til Mar 09, 2012
-
Hlutverk kvenna í þróun heimbyggðar verður þema ráðstefnunnar (CSW) sem haldin verður í New York og hefst mánudaginn 27. febrúar 2012. Norrænu jafnréttisráðherrarnir taka þátt í ráðstefnunni og kynna norræn sjónarmið, lausnir og áskoranir sem tengjast þemanu.
-
„Jafnrétti kynjanna – Norræna leiðin” viðburður Norrænu ráðherranefndarinnar í tengslum við kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
-
Dagsetning
Feb 29, 2012
til Feb 29, 2012
-
Öflugt hagkerfi er nauðsynlegt öllum þjóðum sem vilja þróa sjálfbært velferðarþjóðfélag. Nútíma þjóðfélög þurfa að nýta krafta allra, óháð kyni, fötlun, kynþætti, trú, aldri og kynhneigð. Norrænt samstarf hefur á undanförnum 30 árum unnið að jafnrétti kynjanna og náðum miklum árangri. Norðurlöndin einkennast af öflugum velferðarþjóðfélögum. Við öðluðumst hagsæld vegna þess að við þróuðum velferðarríkið. Velferðarþættir eins og fæðingarorlof, dagheimili og umfangsmikil heilbrigðis- og umönnunarþjónusta er nauðsynleg svo hægt sé að skapa atvinnutækifæri og gera fólki kleyft að vinna. Norðurlöndin hafa einnig tryggt jafnan rétt kvenna og karla með löggjöf. Konur verða að hafa jafnan aðgang að fjármagni og tækifærum. Þetta á við jafnt á strjálbýlum svæðum sem og í þéttbýli. Konur geta stuðlað að aukinni framleiðni og þróun samfélagsins í heild sinni. Til þess að minnka aðstöðumun kynjanna, er nauðsynlegt að móta stefnu sem leiðréttir mismunun kynjanna. Þjóðfélagsbreytingar verða að stjórnast af pólitískum vilja og ákvörðunum. Við munum ekki öðlast raunverulegt jafnrétti án þess að viðurkenna að jafnrétti kynjanna snýst einnig um karla. Karlar verða að taka þátt í jafnréttisverkefnum því það mun bæta líf þeirra og vegna þess að sífellt fleiri konur eru í stöðum þar sem þær hafa vald til þess að breyta þjóðfélaginu. Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar á hlutverkum karla, sérstaklega í uppeldismálum. Rannsóknir sýna að feður mynda nú sterkari tengsl við börn sín. Einnig má sjá að þátttaka karla á heimilinu stuðlar að auknu jafnrétti kynjanna á vinnustað.
-
10. norræna ráðstefnan um mataræði haldin í Reykjavík, dagana 3. - 5. júní, 2012.
-
Dagsetning
Jun 03, 2012
til Jun 05, 2012
-
Markmiðið með ráðstefnunni er að fylgjast með stefnum og straumum og skapa umræðuvettvang fyrir næringarfræðinga og aðra fagaðila sem vinna að málefnum sem tengjast mataræði og heilsu. Áhersla verður á nýjustu rannsóknir á sviði matvæla, mataræðis og heilsu á Norðurlöndum, en einnig á alþjóðavettvangi.