Document Actions

Norræna fangamarkið

Skýr myndræn einkenni eru mikilvægur þáttur í vitundinni um norrænt samstarf. Norræna fangamarkið er samsett úr tveimur hlutum: Svansmerkinu og nafnmerkinu „Norden”.

 

Bomærket uden afsenderidentitet

Svansmerkið

Svansmerkið er blár hringur sem umlykur hvítan svan með átta vængfjaðrir. Vængfjaðrirnar átta tákna norrænu ríkin fimm, Danmörku, Finnland, Ísland, Noreg og Svíþjóð, og sjálfstjórnarsvæðin þrjú, Færeyjar, Grænland og Álandseyjar.  Hvítur hringur er utan um merkið.

Finnski listamaðurinn Kyösti Varis hannaði svansmerkið.

Nafnmerkið "Norden"

Nafnmerkið norden er alþjóðlegt samheiti samstarfsins og myndar fangamarkið ásamt svansmerkinu. Nafnmerkið

Due Design AS hannaði nafnmerkið „Norden", sem í senn er nútímalegt, einfalt og traustvekjandi.

Tengt efni
  • Útgáfa
  • Útgáfudeildin (Samtök)

    Útgáfudeildin sér um útgáfumál fyrir Norrænu ráðherranefndina. Um 200 rit koma út árlega, þau skiptast nokkuð jafnt í verkefnaskýrslur, sem eru undirstaða pólitískra ákvarðana (TemaNord serían) og önnur rit um pólítísk málefni (ANP serían). Útgáfudeildin gefur upplýsingar og veitir ráð um útgáfumál og um hönnunarstaðla Norrænu ráðherranefndarinnar.


 

Tengiliður

Niels Stern
Sími: +45 33 96 04 10
Tölvupóstur: