Samstarfsráðherrarnir og ákveðnir þingmenn stjórna norrænu samstarfi.
Norrænu forsætisráðherrarnir og leiðtogar Færeyja, Grænlands og Álandseyja bera pólitíska ábyrgð á samhæfingu í norrænu samstarfi. Norrænu samstarfsráðherrarnir bera pólitíska ábyrgð á samhæfingu í norrænu samstarfi. Sá samstarfsráðherra sem kemur frá því landi sem fer með formennsku í norrænu samstarfi er formaður samstarfsráðherranna.
Alls eru 10 fagráðherranefndir. Í þeim sitja þeir ráðherrar frá Norðurlöndunum og sjálfstjórnarsvæðunum þremur, Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum, sem bera ábyrgð á þeim málaflokkum sem ráðherranefndirnar fjalla um.
Sér til aðstoðar hafa samstarfsráðherrarnir háttsetta embættismenn sem mynda norrænu samstarfsnefndina. Þeir sjá um samhæfingu samstarfsins.
Framkvæmdastjórinn er æðsti embættismaðurinn á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar.
Norrænar stofnanir eins og Menningarsjóðurinn, Norræna menningargáttin, Nordisk Innovation, Norræna rannsóknastofnunin og Norrænar orkurannsóknir lúta stjórn framkvæmdastjóra eða forstjóra, en æðstu embættismenn Norræna fjárfestingabankans eru nefndir bæði forseti og forstjóri.
Fulltrúar í Norðurlandaráði eru valdir af þingi hvers lands/svæðis fyrir sig og eru þeir allir þingmenn. Æðsta ákvörðunarvald ráðsins nefnist forsætisnefnd. Nefndinni stjórna forseti og varaforseti, sem báðir eru kosnir á Norðurlandaráðsþingi í eitt almanaksár í senn. Forsetinn og varaforsetin eru frá því landi sem verður gestgjafi næsta þings.
Formaður og varaformaður í nefndum Norðurlandaráðs eru kosnir á þinginu og samsetning þeirra á að endurspegla jafnvægi milli, aðildarríkja, flokkahópa og kynja.
Æðsti embættismaður Norðurlandaráðs er framkvæmdastjórinn sem stjórnar starfi skrifstofunnar.
Alþýðlegu norrænu samstarfi er stjórnað af Sambandi Norrænu félaganna (FNF) sem stjórnað er af forsætisnefnd sem í sitja formenn Norrænu félaganna. Æðsti embættismaður FNF er framkvæmdastjórinn. Æðsti embættismaður félaganna í hverju landi fyrir sig er titlaður framkvæmdastjóri.
Fjöldi þekktra stjórnmálamanna hefur tekið virkan þátt í norrænu samstarfi í gegnum tíðina. Meðal fyrrverandi forseta Norðurlandaráðs eru Svíarnir Olof Palme og Karin Söder, Norðmennirnir Kåre Willoch og Trygve Bratteli, Karl-August Fagerholm og Vieno Jussi Sukselainen frá Finnlandi, Anker Jørgensen og Jens Otto Krag frá Danmörku, og Matthías Á. Mathiesen og Páll Pétursson frá Íslandi.