Document Actions

Ríki og svæði

Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur, Svíþjóð og sjálfstjórnarsvæðin Færeyjar, Grænland og Álandseyjar starfa saman í norrænu samstarfi í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni.

De nordiska flaggorna
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Bæði Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin eiga fjölda samstarfsaðila og taka virkan þátt í öðru svæðasamstarfi.

Norðurlandaráð er aðili að þingmannasamstarfi Eystrasaltssvæðisins BSPC bæði með því að senda sendinefnd á árlegan fund og með því aðildarríkin eiga fulltrúa í fastanefnd samtakanna. Norðurlandráð er áheyrnarfulltrúi í fastanefnd þingmannanefndar norðurskautsins (SCPAR), sem er þingmannanefnd Norðurskautsráðsins.

Norræna ráðherranefndin er áheyrnarfulltrúi í Norðurskautsráðinu sem er samstarfsvettvangur ríkisstjórna þeirra ríkja sem eiga land á norðurskautinu; auk norrænu ríkjanna, Grænlands og Færeyja er um að ræða Kanada, Rússland og Bandaríkin. Ráðherranefndin er einnig virkur þátttakandi í Baltic Sea Initiative, sem vinnur að því að efla samkeppnishæfni svæðsins og framkvæmd norðlægu víddar ESB á ýsmum sviðum. Að auki tekur ráðherranefndin þátt í samstarfi sem Barentsráðið og Barentssvæðaráðið eiga frumkvæði að.

Norræna ráðherranefndin er með skrifstofur í Eistlandi, Lettlandi, Litháen, í Norðvestur-Rússlandi og Kalíningrad.

Mikill fjöldi stofnana í norrænni eigu er innan ramma norræna samstarfsins. Eistland, Lettland og Litháen hafa síðan árið 2005 einnig verið meðeigendur að einni stofnananna - Norræna fjárfestingabankanum (NIB).

Tengt efni
  • Norðurlöndin, Færeyjar, Grænland og Álandseyjar

    Upplýsingar um norrænu ríkin

  • Kort af Norðurlöndum

    Það getur verið gott að vita hvar er hægt að finna kort af Norðurlöndum, bæði til þess að prenta og til nota á eigin heimasíðu. Eða til þess að skoða hvernig landið lítur út og hvar hinir ýmsu bæir, firðir, fjöll o.fl eru. Hér að neðan er krækjusafn á kort af Norðurlöndum sem nota má án endurgjalds. Sum eru betri en önnur, en það er fjótlegt að finna út hvaða kort hentar best þörfum hvers og eins.


 

Tengiliður

Helgi Þorsteinsson
Sími +45 33 96 04 59
Tölvupóstur