Document Actions

Yfirlit yfir samninga á norden.org

Upplýsingar um samningana eru ætlaðar almenningi, stjórnmálamönnum, þeim sem ákvarðanir taka, embættismönnum, fjölmiðlum og öðrum sem áhuga hafa á norrænum samningum og samkomulagi.

Ljósmyndari
Foto: Magnus Fröderberg/norden.org

Á þesum síðum eru samningar sem gerðir afa verið milli Norðurlanda. Þessir samningar hafa oft verið gerðir innan starfsramma Norrænu ráðherranefndarinnar í ráðherranefndum.

Á vefsíðum með samningum á norden.org eru einnig upplýsingar um ákvarðanir og yfirlýsingar, sem varða leiðina fyrir norrænt samstarf til framtíðar. Yfirleitt er um að ræða fjölþjóðlega samninga.

Á þessum vefsíðum eru einnig samkomulagstextar eða krækjur í samninga á öðrum vefsíðum, sem veita mikilvægar upplýsingar og gera almenningi kleift að skilja umgerðina um norræna samstarfið. Á síðunum eru einnig ESB sáttmálann, EES samninginn, Schengen samkomulagið.

Enn fremur eru þar krækjur í umsjónaraðila með samkomulagsréttinum á Norðurlöndunum, þannig að þeir sem áhuga hafa á geti kynnt sér þjóðarrétt í hverju landi fyrir sig og hvaða þýðingu hann hefur í norrænu samstarfi.

Samningar á norden.org eru birtir í upplýsingaskyni

Samningar sem birtir eru á vefsíðunni norden.org eru eingöngu birtir þar í upplýsingaskyni.

Upplýsingar um samningana eru ætlaðar almenningi, stjórnmálamönnum, þeim sem ákvarðanir taka, embættismönnum, fjölmiðlum og öðrum sem áhuga hafa á norrænum samningum og samkomulagi.

Oftast er um að ræða samkomulag svonefnda alþjóðasamninga, samninga og ákvarðanir, en einnig eru þar yfirlýsingar og skjöl sem eru undirstaða framtíðarsamstarfsins og sem vísa veginn fram á við í norræna samstarfinu.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðum utanríkisráðuneyta Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar.

Gagnasafn Sameinuðu þjóðanna United Nations Treaty Collections er einnig gott gagnasafn um alþjóðlega samninga, meðal annars um norræna samninga.

Tengiliður

Marita Hoydal
Sími: 29692915
Tölvupóstur: