Document Actions

Norrænn samningur um heilbrigðisviðbúnað

Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um heilbrigðisviðbúnað, gerður í Svolvær 14. júní 2002.

Ríkisstjórnir Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar,

sem eru sannfærðar um nauðsyn þess að stofnað verði til samvinnu milli heilbrigðisyfirvalda aðildarlandanna í þeim tilgangi að efla sameiginlega getu Norðurlandanna til að bregðast við hættuástandi og hamförum, að meðtöldum náttúruhamförum og atvikum (slysum og hryðjuverkaárásum) þar sem m. a. geislavirk efni, sýkla- og efnavopn koma við sögu,

sem óska eftir að skipuleggja skilvirka aðstoð vegna hættuástands eða hamfara í einu Norðurlandanna þar sem aðstoðin fellur ekki undir aðra norræna fjölhliða eða tvíhliða samninga, þar á meðal samninginn milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar frá 20. janúar 1989 um samvinnu landanna til að koma í veg fyrir eða takmarka þann skaða á mönnum, eignum og umhverfi sem kann að verða, ef slys eða hættuástand ber að höndum (Norræni björgunarþjónustusamningurinn),

sem vilja gera samning er myndað getur ramma um samvinnu undirbúningsframkvæmda vegna viðbúnaðar,

sem vilja enn frekar bæta samvinnu á þessu sviði,

eru ásáttar um að gera norrænan samning um heilbrigðisviðbúnað sem hljóðar svo:

1. grein

Skilgreiningar

Í þessum samningi merkja hugtökin

a) ,,eitt Norðurlanda"

sérhvert aðildarland auk heimastjórnarsvæðanna Færeyja, Grænlands og Álandseyja að svo miklu leyti sem svæðin hafi gefið samþykki sitt fyrir aðild að samningnum;

b) ,,þar til bær aðili"

í Danmörku:

Indenrigs- og sundhedsministeriet

í Finnlandi:

Social- och hälsovårdsministeriet

á Íslandi:

Heilbrigðis-og tryggingamálaráðuneytið

í Noregi:

Helsedepartementet

í Svíþjóð:

Socialministeriet, eða sá aðili sem ráðuneytið hefur veitt umboð.

2. grein

Tilgangur

Samningur þessi á að stuðla að samvinnu milli Norðurlandanna vegna undirbúnings og þróunar á heilbrigðisviðbúnaði með tilliti til viðbragða við hættuástandi og hamförum, að meðtöldum náttúruhamförum og atvikum (slysum og hryðjuverkaárásum) þar sem m.a. geislavirk efni, sýkla- og efnavopn koma við sögu.

3. grein

Gildissvið

Samningur þessi varðar samvinnu milli þar til bærra norrænna aðila á sviði heilbrigðis- og félagsmála. Samvinnan nær yfir:

a. undirbúning að viðbúnaði og

b. aðstoð ef hamfara- eða hættuástand skapast hjá aðildarríki.

Samningur þessi er viðbót við Norrænan björgunarþjónustusamning frá 20. janúar 1989 og kemur því ekki til framkvæmdar ef þörfin fyrir aðstoð fellur undir fyrirnefndan samning.

Dreifing á stjórnsýslu- og fjárhagslegum afleiðingum í tengslum við samstarf um framkvæmdir vegna viðbúnaðar sem nefnt er í 1. lið a þessarar greinar, verður ákveðin í hverju tilviki. Undir kringumstæðum sem falla undir 1. lið b þessarar greinar verður ákvæðum í ,,Norrænum björgunarþjónustusamningi" beitt eins langt og þau ná.
Samningur þessi má ekki verða Norðurlöndunum hindrun við efnd skuldbindinga sinna vegna þátttöku í fjölþjóðlegri eða þjóðréttarlegri samvinnu, eða taka þátt í alþjóðlegu samstarfi.

Norðurlöndin geta gert með sér samninga á sérsviðum innan ramma þessa samnings.

4. grein

Skuldbindingar ríkjanna

Norðurlandaþjóðirnar skuldbinda sig

1) sé þess beðið, til að aðstoða hverjar aðra af fremsta megni innan ákvæða þessa samnings,

2) til að upplýsa hverjar aðra eins fljótt og auðið er um framkvæmdir sem eru fyrirhugaðar eða eru þegar hafnar sem munu hafa, eða ætla má að muni hafa, þýðingu annars staðar á Norðurlöndum,

3) til að efla samvinnu í landslögum, reglugerðum og öðrum reglum samkvæmt þessum samningi og ryðja úr vegi hvaðeina sem hindrað getur samvinnu þessa að eins miklu leyti og hægt er,

4) til að stuðla að samvinnu um hæfnisþróun og að aðilar geti skipst á reynslu,

5) til að stefna að þróun samvinnu á þessu sviði,

6) til að upplýsa hver aðra um breytingar sem viðkoma fyrirkomulagi á viðbúnaði, einnig lagabreytingar.

5. grein

Framkvæmd samningsins

Heilbrigðisráðherrar aðildarríkjanna funda reglulega til að ræða stöðu mála innan verksviðs samningsins. Sú þjóð sem fer með formennsku Norrænu ráðherranefndarinnar ber ábyrgð á framkvæmd funda.

Forsenda fyrir framkvæmd þessa samnings er að hlutaðeigandi yfirvöld verði í beinu sambandi sín á milli.

Hlutaðeigandi yfirvöld skulu meta sameiginlega þróun og framkvæmd samningsins árlega. Þetta skal, þar sem því verður við komið, fara fram innan þess fundarfyrirkomulags sem þegar er til staðar.

6. grein

Gildistaka

Samningurinn öðlast gildi þrjátíu dögum eftir þann dag er öll aðildarlöndin hafa tilkynnt norska utanríkisráðuneytinu skriflega um staðfestingu samningsins.

Norska utanríkisráðuneytið tilkynnir skriflega öðrum samningsaðilum og Norrænu ráðherranefndinni dagsetningu fyrir móttöku slíkra tilkynninga og dagsetningu gildistöku samningsins.

7. grein

Uppsögn samnings

Samningsaðili getur sagt upp samningnum með skriflegri tilkynningu þess efnis til norska utanríkisráðuneytisins sem upplýsir hina samningsaðilana um dagsetningu fyrir móttöku slíkrar tilkynningar og um efni hennar. Uppsögnin öðlast gildi sex mánuðum eftir móttöku tilkynningarinnar.

8. grein

Varsla samnings

Frumeintak þessa samings verður í vörslu hjá norska utanríkisráðuneytinu sem lætur hinum samningsaðilunum í té staðfest afrit.

Þessu til staðfestu hafa undirritaðir, sem til þess hafa fullt umboð, undirritað samning þennan.

Gjört í Svolvær hinn 14. júní 2002 í einu eintaki á dönsku, finnsku, íslensku, norsku og sænsku og eru allir textarnir jafngildir.


Samningsaðilar

Danmörk, Noregur, Ísland, Svíþjóð, Finnland

Undirritun samnings

Dagsetning 12/06 2002

Staðsetning: Svolvær, Noregur

Í gildi

12/06 2002

Tengt efni
  • Norræn ráðherranefnd um félags- og heilbrigðismál (MR-S) (Samtök)

    Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna á sviði félags- og heilbrigðismála er stjórnað af norrænu félags- og heilbrigðisráðherrunum, sem saman mynda MR-S. Norræna samstarfið á sviði félags- og heilbrigðismála byggir á sameiginlegum gildum, en þau eru undirstaða norræna velferðarlíkansins.


 

Tengiliður

Maria-Pia de Palo
Sími: +45 33 96 02 77
Tölvupóstur: