Skattamál
Samningur varðandi tvísköttun á tekjum og eignum
Samningur og bókun milli Norðurlanda til að komast hjá tvísköttun að því er varðar skatta á tekjur og eignir frá 23. september 1996 með bókunum um breytingar frá 6. október 1997 og 4. apríl 2008.
Samningur til að komast hjá tvísköttun arfs og gjafafjár
Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar til að komast hjá tvísköttun arfs og gjafafjár frá 12. september 1989. Svíþjóð sagði samningnum upp fyrir sitt leyti 25. júní 2007 og Svíar eru því ekki lengur aðilar að samningnum.
