Document Actions

Vegabréfamál, ríkisborgararéttur og skráning í þjóðskrá

Norræni vegabréfaskoðunarsamningurinn
Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um afnám vegabréfaskoðunar við landamæri milli Norðurlandanna, gerður 12. júlí 1957, sem Ísland gerðist aðili að 24. september 1965, með breytingum frá 27. júlí 1979 og viðaukum frá 2. apríl 1973 og 18. september 2000.
Bókun um að leysa ríkisborgara Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar undan skyldu til að hafa í höndum vegabréf og dvalarleyfi við dvöl í öðru norrænu landi en heimalandinu
Bókunin var undirrituð 22. maí 1954 af fulltrúum Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar og gekk í gildi 1. júlí 1954. Ísland gerðist aðili að bókuninni með erindaskiptum við aðildarríki bókunarinnar 1. desember 1955. Færeyjar gerðust aðili að bókuninni 1. janúar 1966. Bókunin er ekki til í íslenskri þýðingu þar sem íslenska er ekki eitt opinberra mála bókunarinnar. Hér birtist því dönsk útgáfa bókunarinnar og fyrir neðan hana birtast erindaskipti sænskra og íslenskra yfirvalda í tengslum við aðild Íslands að bókuninni sem dæmi um erindaskipti Íslands og aðildarríkja bókunarinnar.
Samningur um framkvæmd tiltekinna ákvæða um ríkisborgararétt
Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um framkvæmd tiltekinna ákvæða um ríkisborgararétt.
Samningur um almannaskráningu
Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um almannaskráningu.

 

Tengiliður

Thomas Xavier Duholm
Sími +45 33960369
Tölvupóstur