Samningur um samstarf stjórnvalda og stofnana á sviði starfsendurhæfingar og starfsmenntunar
Samningur milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um samstarf stjórnvalda og stofnana á sviði starfsendurhæfingar og starfsmenntunar.
Ríkisstjórnir Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, sem hafa gert með sér samning um sameiginlegan vinnumarkað, hafa ákveðið að gera eftirfarandi samning um samstarf stjórnvalda og stofnana á sviði starfsendurhæfingar og starfsmenntunar. Samningurinn er byggður á þeirri meginreglu að hvert land fyrir sig komi á fót nægilegri starfsemi á sviði starfsendurhæfingar og starfsmenntunar til þess að fullnægja þörfum í landinu.
1. gr.
Þessi samningur miðar að því að auka í sérstökum tilvikum möguleika til starfsendurhæfingar og starfsmenntunar fyrir atvinnuleitendur sem hafa fasta búsetu í einhverju hinna samningslandanna, hvort sem þeir eru ríkisborgarar norræns lands eða ekki.
Í samræmi við það sem segir í þessum samningi skulu hlutaðeigandi stjórnvöld í samningslöndunum eiga þess kost að nota hvers annars stofnanir til starfsendurhæfingar og starfsmenntunar í eftirtöldum tilvikum:
a. á landamærasvæðum þegar starfsendurhæfingarstofnun eða starfsmenntastofnun annars samningslands er nær eða aðgengilegri fyrir umsækjanda en stofnun í búsetulandinu, eða
b. þegar endurhæfingarstofnun eða starfsmenntamiðstöð eða samsvarandi starfsmenntun í landinu hefur að bjóða sérstaka möguleika sem umsækjendur eiga ekki kost á í búsetulandinu.
2. gr.
Veita má umsækjanda aðgang að stofnun fyrir starfsendurhæfingu eða starfsmenntun í öðru samningslandi þegar stofnunin eða það stjórnvald sem veitir aðgang að henni hefur samþykkt það.
3. gr.
Kostnað vegna endurhæfingar eða starfsmenntunar sem þessi samningur miðast við greiðir búsetulandið samkvæmt taxta sem yfirmaður hlutaðeigandi stofnunar setur.
Sá sem tekur þátt í starfsendurhæfingu eða starfsmenntun samkvæmt þessum samningi skal fá þá styrki sem vettir eru við hliðstæða endurhæfingu eða menntun í búsetulandinu. Þessa styrki skulu stjórnvöld í búsetulandinu inna af hendi.
4. gr.
Þessi samningur tekur ekki til verndaðrar vinnu og starfsmenntunar innnan hins almenna skólakerfis eða starfsmenntamiðstöðvar Norðurkollu. Samningurinn tekur þó til þeirrar vernduðu vinnu sem stofnað er til í allt að sex mánuði með starfsprófun eða starfsþjálfun fyrir augum.
5. gr.
Norræna vinnumarkaðsnefndin skal, að fengnu áliti annarra hlutaðeigandi stjórnvalda, semja reglur um framkvæmd þessa samnings.
6. gr.
Óski lan að segja samningnum upp skal skrifleg tilkynning um það send danska utanríkisráðuneytinu, sem skal skýra ríkisstjórnum hinna norrænu landanna frá því.
Uppsögnin gildir aðeins fyrir það land sem upp segir og gildir hún frá og með byrjun þess almanaksárs sem hefst að liðnum að minnsta kosti sex mánuðum frá því að danska utanríkisráðuneytinu barst tilkynning um uppsögnina.
7. gr.
Samning þennan skal fullgilda og fullgildingarskjölunum komið til varðveislu í danska utanríkisráðuneytinu.
Samningurinn gengur í gildi fyrsta dag þess mánaðar sem hefst að liðnum tveim heilum almanaksmánuðum frá þeim degi er öll löndin hafa afhent fullgildingarskjöl sín til varðveislu.
Þessu til staðfestu hafa undirritaðir, sem til þess hafa umboð ríkisstjórna sinna, undirritað samning þennan.
Gjört í Kaupmannahöfn 6. mars 1982 í einu eintaki á íslensku, dönsku, finnsku, norsku og sænsku, og eru allir textarnir jafngildir.
Samningi þessum skal komið til varðveislu í danska utanríkisráðuneytinu sem skal koma staðfestum afritum til hinna samningslandanna.
Samningsaðilar
Sverige, Danmark, Finland, Island og Norge
Undirritun samnings
Dagsetning 06/03 1982
Staðsetning: København
Í gildi
01/07 1983
