- Info
Nefndir Norðurlandaráðs
-
Menningar- og menntamálanefndin
-
Menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs fjallar um og gerir tillögur að pólitískum aðgerðum á sviði menningar og menntunar, þar á meðal mál er varða tungumálasamstarf, nýja miðla, færniþróun og nýsköpun á sviði menntunar.
-
Kjörnefndin
-
Í kjörnefnd eru sjö fulltrúar. Kjörnefnd undirbýr og gerir tillögur að kjöri sem fram fer á þingi.
-
Borgara- og neytendanefndin
-
Borgara- og neytendanefndin fjallar um málefni sem snerta réttindi borgaranna og neytenda auk meginþátta sem snerta lýðræði, mannréttindi, jafnrétti o.fl. og sem tengjast starfsvettvangi hennar.
-
Eftirlitsnefndin
-
Eftirlitsnefndin fylgist fyrir hönd þingsins með starfsemi sem fjármögnuð er úr sameiginlegum sjóðum Norðurlandanna.
-
Velferðarnefndin
-
Velferðarnefndin vinnur með norræna velferðarlíkanið, velferð, heilbrigðis- og félagsmálastefnu
-
Umhverfis- náttúruauðlindanefndin
-
Umhverfis- og náttúruauðlindanefndin vinnur að því að viðhalda og þróa umhverfisvitund á Norðurlöndum
-
Efnahags- og viðskiptanefndin
-
Efnahags- og viðskiptanefndin fjallar um efnahagsumhverfi, rannsóknir, framleiðslu og verslun, þar með talið frelsi á markaði og atvinnumarkaði á Norðurlöndum.
