Document Actions

Um Norrænu félögin og Samband norrænu félaganna

Norrænu félögin eru félög óháð stjórnmálaflokkum sem vinna að því að efla norrænt samstarf, að opnun landamæra á Norðurlöndum og þróun norræna menningarsamstarfsins. Norrænu félögin vinna saman í gegnum Samband norrænu félaganna.

Norrænu félögin voru stofnuð árið 1919 í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, árið 1922 á Íslandi og árið 1924 í Finnlandi. Árið 1951 var Norræna félagið í Færeyjum stofnað, árið 1979 á Álandseyjum, og árið 1991 á Grænlandi.

Norrænu félögin vinna að því að efla norrænt samstarf, að opnun landamæra á Norðurlöndum og þróun norræna menningarsamstarfsins. Norrænu félögin vinna að því að auka áhuga almennings á virku samstarfi Norðurlandanna. Starfið felst í útbreiðslu þekkingar um tungumál, menningu og þjóðfélagsaðstæður á Norðurlöndum ásamt því að mynda tengslanet einstaklinga, fjölskyldna, skóla, samtaka, sveitarfélaga og fyrirtækja.

Annað mikilvægt verkefni er að vera í nánum tengslum við stjórnvöld og aðra sem taka ákvarðanir ásamt því að eiga frumkvæði í norrænum málefnum. Eitt af stærstu verkefnum samtímans er að afnema þær stjórnsýsluhindranir sem enn eru til staðar á Norðurlöndum.

Samband Norrænu félaganna

Samband norrænu félaganna, FNF, er samstarfsvettvangur Norrænu félagann í þjóðlöndunum og Ungliðahreyfingar sambands Norrænu félaganna (FNU).

Sambandið starfar einnig með Eesti Põhjala Ühing (Norræna félaginu í Eistlandi) og Biedrība Norden Latvija (Norræna félaginu í Lettlandi) og Norðurlandafélaginu í Petrozavodsk.

Meginverkefni sambandsins er að samræma sameiginlega hagsmuni félaganna í hverju landi fyrir sig hvað varðar eflingu alþýðlegs norræns samstarfs á öllum sviðum. Stefnuskrá sambandsins byggir á þeim málum sem eru í forgangi í starfi Norrænu félaganna í hverju landi fyrir sig.

Það er markmið FNF að breiða út þekkingu um tungumál, menningu, sögu og þjóðfélagslíf norrænu ríkjanna. FNF á frumkvæði að því að auka alþýðlegt samstarf innan Norðurlandanna og Evrópu og á alþjóðavettvangi. Meðal þeirra verkefna sem FNF stendur fyrir, sem stuðla að því að markmiðið náist eru Nordjobb, Norræna bókasafnsvikan og Norðurlönd í bíó.

Tengt efni
  • Nordjobb (Samtök)

    Markmiðið með Nordjobb er að auka þekkingu á Norðurlöndunum og auka þekkingu á tungumálum og menningu á Norðurlöndunum með því að bjóða ungu fólki á aldrinum 18 til 28 ára sumarstörf í öðru norrænu landi en heimalandinu eða á einu sjálfstjórnarsvæðanna.

  • Norrænt vinabæjasamstarf

    Markmið vinabæjasamstarfs er að auðvelda sveitarfélögum og íbúum þeirra að eiga samstarf, miðla reynslu, heimsækja hvert annað og ræða sameiginleg hagsmunamál. Samtök norrænu félaganna (FNF) og deildir þeirra eru drifkraftur og ástæða þess að vinabæjasamstarfið hefur orðið lifandi hluti norræna samstarfsins.

  • Þátttaka í norrænu samstarfi

    Hér eru upplýsingar um hvernig hægt er að taka þátt í og hafa áhrif á norræna samstarfið. Takið þátt í málefnum sem þið hafið áhuga á, sendið athugasemdir, hlustið og látið í ykkur heyra um það hvernig þið viljið að Norðurlöndin verði í framtíðinni.