Document Actions

Ráðherranefndir

Ráðherranefnd um jafnrétti (MR-JÄM)
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um jafnréttismál er stýrt af jafnréttisráðherrunum, en þeir sitja í ráðherranefnd um jafnréttismál (MR-JÄM). Sameiginleg menning, saga og lýðræðishefðir Norðurlandanna gera þeim kleift að þróa náið og uppbyggilegt samstarf á sviði jafnréttismála.
Samstarfsráðherrarnir (MR-SAM)
Samstarfsráðherrarnir sjá um samræmingu á norræna ríkisstjórnarsamstarfinu í umboði norrænu forsætisráðherranna.
Norræna ráðherranefndin um fiskveiðar, fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt (MR-FJLS)
MR-FJLS er ráðherranefnd sem nær til fjögurra pólitískra sviða: Fiskveiða og fiskeldis, landbúnaðar, matvæla og skógræktar Meginverkefni MR-FJLS er að efla sjálfbæra nýtingu náttúru- og erfðaauðlinda.
Norræn ráðherranefnd um umhverfismál (MR-M)
Ráðherranefnd um umhverfismál, MR-M, stýrir samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um umhverfismál. Markmiðið með norræna umhverfissamstarfinu felst meðal annars í því að varðveita og bæta umhverfi og lífsgæði á Norðurlöndunum auk þess að hafa áhrif á svæðisbundið og alþjóðlegt samstarf.
Norræna ráðherranefndin um atvinnulífs-, orkumála- og byggðastefnu (MR-NER)
Samstarf Norðurlandanna á sviði atvinnulífs, orkumála og byggðamála á að tryggja áframhaldandi hagvöxt á svæðinu. Norrænu ráðherrarnir sem fara með málefni atvinnu-, orku- og byggðastefnu stýra samstarfinu.
Norræna ráðherranefndin um atvinnulíf (MR-A)
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna á sviði vinnumarkaðsmála, og á sviði vinnuumhverfis og vinnuréttar er stýrt af norrænu atvinnumálaráðherrunum, saman mynda þeir ráðherranefnd um atvinnulíf.
Norræna ráðherranefndin um menningu (MR-K)
Menningarmálaráðherrar Norðurlandanna og Færeyja, Grænlands og Álandseyja bera ábyrgð á norrænu menningarsamstarfi innan Norrænu ráðherranefndarinnar. Meginmarkmiðið er meðal annars að stuðla að fjölbreytni í listtjáningu og kynna listamenn og störf þeirra
Norræna ráðherranefndin um efnahags- og fjármálastefnu (MR-FINANS)
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um efnahags- og fjármál er stjórnað af norrænu fjármálaráðherrunum, sem mynda ráðherranefndina MR-FINANS. Samstarfinu er ætlað að gæta norrænna hagsmuna á alþjóðavettvangi og stuðla að efnahagslegri samættingu á alþjóðavettvangi.
Norræna ráðherranefndin um menntun og rannsóknir (MR-U)
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um rannsóknir og menntun er stjórnað af norrænu ráðherrunum sem fara með málefni menntamála og rannsókna, saman mynda þeir MR-U. Ráðherranefndin vinnur að því að Norðurlöndin verði í fararbroddi hvað varðar þekkingu og samkeppnishæfni.
Norræn ráðherranefnd um félags- og heilbrigðismál (MR-S)
Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna á sviði félags- og heilbrigðismála er stjórnað af norrænu félags- og heilbrigðisráðherrunum, sem saman mynda MR-S. Norræna samstarfið á sviði félags- og heilbrigðismála byggir á sameiginlegum gildum, en þau eru undirstaða norræna velferðarlíkansins.
Ráðherranefnd um lagasamstarf (MR-LOV)
Lagasamstarfi norrænu ríkisstjórnanna er stýrt af dómsmálaráðherrunum, en þeir sitja í ráðherranefnd um lagasamstarf MR-LAG. Lagasamstarfið nýtist norrænu ríkjunum við undirstöðustefnumótun í norrænni lagasetningu.

 

Tengiliður

Helgi Þorsteinsson
Sími: +45 33 96 04 59
Tölvupóstur: