Skrifstofan miðlar norrænni menningu á landamærasvæðinu meðal annars með því að bjóða heim norrænum rithöfundum, með listsýningum, tónleikahaldi, leshópum og ferðalögum innan Norðurlanda. Jafnframt miðlar skrifstofan upplýsingum um Suður-Jótland til annarra norrænna ríkja.
Eitt mikilvægasta verkefni skrifstofunnar er fylgjast með og finna nýjar leiðir til samstarfs Litháen og Norðurlandanna, starfið er unnið í samstarfi við norræna fulltrúa, sem skrifstofan hefur náið samstarf við. Skrifstofan stuðlar einnig að kynningum á því sem er "norrænt" og að því að auka norrænt samstarf við Eistland.
Upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Kalíníngrad er útibú frá skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Samkvæmt samþykkt "memorandum of understanding" sem gerð var þann 22. desember 2005 og "reglum um samstarf við Norðvestur-Rússland 2009-2013" vinnur skrifstofan að því að miðla upplýsingum og koma á samstarfi Norðurlanda við samstarfsaðila á Kalíníngrad svæðinu.
Eitt mikilvægasta verkefni skrifstofunnar er fylgjast með og finna nýjar leiðir til samstarfs Litháen og Norðurlandanna, starfið er unnið í samstarfi við norræna fulltrúa, sem skrifstofan hefur náið samstarf við. Skrifstofan stuðlar einnig að kynningum á því sem er "norrænt" og að því að auka norrænt samstarf við Litháen
Upplýsingaskrifstofan í Pétursborg var sett á laggirnar árið 1995. Skrifstofan er fulltrúi Norrænu ráðherranefndarinnar í Norðvestur-Rússlandi. Eitt af mikilvægustu verkefnum skrifstofunnar er að fylgjast með nýjungum og tækifærum til að koma á samstarfi Norðurlandanna og Rússlands. Skrifstofan stuðlar einnig að kynningum á því sem er "norrænt" og að því að auka norrænt samstarf við Rússland. Jafnframt er það verkefni skrifstofunnar að byggja upp tengslanet til stjórnvöld í landinu, frjáls félagasamtök og aðrar svæðisbundnar og alþjóðlegar stofnanir á rússneska svæðinu.
Upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Tartu ber ábyrgð á svæðisbundnu samstarfi og mennta- og vísindasamstarfi. Skrifstofan sér meðal annars um umsýslu áætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar um embættismannaskipti milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
Upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Lettlandi heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Meginverkefni skrifstofunnar að að efla og auka samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjann í Lettlandi.. Skrifstofan er í nánu samstarfi við sendifulltrúa Norðurlandanna í Lettlandi og stendur fyrir sameiginlegum norrænum viðburðum, auk þess að fylgjast með stefnum, straumum og tækifærum sem felast í samstarfinu.