Document Actions

Svæðisbundið samstarf

Öresund Direkt
Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.
Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd
Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.
Landamæraþjónustan
Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.
Vinnuhópur undir embættismannanefnd um byggðamál, EK-R, um hnattvæðingu og samstarf þvert á landamæri
Markmið vinnuhópsins er að stuðla að samþættu norrænu framleiðsluumhverfi, sem verður opið fyrir frjárfestingum, samstarfi fyrirtækja, fólks og skapandi tengslaneta þvert á landamæri. Vinnuhópurinn á að þróa tillögur sem miða að þróun nýrra aðgerða þvert á landamæri.
Norræna Atlantshafssamstarfið (NORA)
NORA er nefnd undir samstarfsverkefni Norrænu ráðherranefndarinnar um byggðamál. Tengslin við Norðurlönd og verkefnisstýrt vinnulag gerir NORA að tilvöldum vettvangi fyrir alþjóðlegt samstarf, sem byggir á norrænum gildum og markmiðum.

 

Tengiliður

Helgi Þorsteinsson
Sími: +45 33 96 04 59
Tölvupóstur: