Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur norrænu þingana og Norræna ráðherranefndin er samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna. Fjöldi annarra norrænna samtaka og félaga eiga í samstarfi.
Hvert norrænu ríkjana skipar 20 manna sendinefnd í þingsamstarfið í Norðurlandaráði (NR), nema Ísland sem vegna smæðar sinnar skipar einungis sjö fulltrúa. Í dönsku sendinefndinni eru tveir fulltrúar frá Færeyjum og tveir frá Grænlandi. Í finnsku sendinefndinni eru tveir fulltrúar frá Álandseyjum.
Í ráðherranefndunum 11 Norræna ráðherranefndin (NMR)sitja fulltrúar ríkisstjórna norrænu ríkjanna fimm og sjálfstjórnarsvæðanna þriggja. Allir fulltrúar hafa eitt atkvæði og bindandi ákvarðarnir verða að vera einróma samþykktar.
Norðurlandaráð æskunnar (UNR) í ráðinu sitja ungliðar stjórnmálahreyfinga, fulltrúar norrænna pólitískra ungliðahreyfinga og norrænna pólitískra regnhlífasamtaka. Norðurlandráð æskunnar, UNR, getur haft bein áhrif á stjórnmálamennina í Norðurlandaráði. Það fer þannig fram að stjórn UNR tekur þátt í fundum Norðurlandaráðs sem haldnir eru reglulega allt árið. Tillögur frá Norðurlandaráðsþingi æskunnar, sem haldið er einu sinni á ári, eru sendar áfram til Norðurlandaráðsþingsins, en þar á UNR einnig fulltrúa.
Til eru um tuttugu norrænar stofnanir og álíka margar stofnanir sem ekki er beinlínis hægt að flokka eingöngu sem norrænar stofnanir. NordForsk, Norræna menningargáttin, og Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (NOPEF) eru norrænar stofnanir eins og Norrænu húsin á Íslandi og í Færeyjum.
Ein mikilvægasta stofnunin í hinum flokknum er Norræni fjárfestingabankinn (NIB) sem hefur verið rekin sameiginlega af norrænu ríkjunum fimm og Eystrasaltsríkjunum þremur frá árinu 2005. NIB veitir lán til verkefna sem styrkja eiga samkeppnishæfni og bæta umhverfið jafnt í þeim löndum sem eiga bankann og annars staðar í heiminum. Önnur mikilvæg stofnun í þessum flokki er Norræni menningarsjóðurinn, sem styrkir norræna menningu á Norðurlöndum eða norræn verkefni sem unnin eru utan Norðurlandanna.
Norðurlönd í brennidepli, upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar, sem rekin er í öllum norrænu höfuðborgunum tilheyrir hinum flokknum.
Félagasamtökin Norrænu félögin, sem hafa það að markmiði að efla norrænt samstarf almennings á öllum sviðum, eru rekin á öllum Norðurlöndunum fimm, í Færeyjum og á Álandseyjum. Norræn félög eru einnig rekin í Eistlandi og Lettlandi og í Petrozavodsk í Norðvestur-Rússlandi. Einnig eru rekin æskulýðsfélög innan norrænu félagana, Æskulýðsdeild Norræna félagsins (FNU).