Mikil áhersla er lögð á ungmennastarfið. Norræna upplýsingaskrifstofan á samstarf við önnur félög og stofnanir um tungumálakennslu, sýningar, námskeið, leshringi og annað menningarstarf.
Norræna upplýsingaskrifstofan í Jyväskylä er jafnframt ein af tólf svæðisskrifstofum Norræna félagsins í Finnlandi og ræðismannsskrifstofa Svíþjóðar . Starfssvæði skrifstofunnar er mið-Finnland. Á því svæði eru 30 sveitarfélög með um 265.000 íbúum. Um 95% íbúanna tala finnsku og nokkur hundruð tala sænsku.
Verkefnissvið Norrænu upplýsingaskrifstofunnar í Alta felast í norrænu menningarsamstarfi, samstarfi við atvinnulífið og í pólitísku samstarfi á Barentssvæðinu Skrifstofan er staðsett á samasvæðinu í Noregi og hefur náið samstarf við og um samískt samstarf í norrænu samhengi.
Skrifstofan miðlar upplýsingum um norrænt samstarf og tekur þátt í og á frumkvæði að samstarfsverkefnum á svæðinu. Starfssvæði skrifstofunnar er í suðurhluta Noregs og Agder hérað.
Norræna upplýsingaskrifstofan í Vasa er jafnframt ein af tólf svæðisskrifstofum Norræna félagsins í Finnlandi. Starfsemi skrifstofunnar nær til svæða í Austurbotni; Mið-Austurbotns og Suður-Austurbotns. Skrifstofan veitir upplýsingar um norrænt samstarf, nordjobb og norræna sjóði jafnframt því að hafa umsjón með norrænum viðburðum og námskeiðum á svæðinu.
Markmið upplýsingaskrifstofunnar Norðurlönd í brennidepli í Reykjavík er að auka þekkingu og athygli á Norðurlöndum og opinbera norræna samstarfinu með því að halda námstefnur, umræðufundi og fl.. Norðurlönd í brennidepli í Reykjavík er í Norræna húsinu í Reykjavík, skrifstofan leggur sérstaka áherslu á menningu.