Document Actions

Vinnuhópar

Yfirlit yfir vinnuhópa Norrænu ráðherranefndarinnar
BAT-hópurinn (Best Available Technique) á sviði umhverfismála
BAT-hópurinn er undirhópur vinnuhóps um sjálfbæra neyslu og framleiðslu HKP. BAT-hópurinn vinnur að því að auka þekkingu um skilvirka og sjálfbæra framleiðslu sem forsendu sjálfbærs samfélags. Í norræna BAT samstarfinu er unnið að tveimur markmiðum: 1) Að vinna upplýsingar um BAT og hreinni tækni fyrir geira sem í eru mörg norræn og sérstaklega lítil og meðalstór fyrirtæki. 2) Að setja norrænt mark á vinnu ESB við að semja BREF skjal.
Norræna aðferðafræðinefndin um matvæli (NMKL)
Nefndin vinnur greiningaraðferðir og leiðbeiningar auk þess að halda námskeið á sviðinu um matvælagreiningu. Jafnframt er nefndin tengslanet norrænna matvælagreinenda.
Norræna samstarfsnefndin um náttúruvísindi (NOS-N)
Norræna samstarfsnefndin um náttúruvísindi er samstarfsvettvangur norrænna rannsóknaráða sem fjármagna rannsóknir innan náttúruvísinda.
Norræni efnahagshópurinn
Efnahagshópurinn var upphaflega settur á laggirnar utan formlega ríkisstjórnarsamstarfsins, en hefur heyrt undir Norrænu fjármálaráðherrana (MR-Finans) frá árinu 2004. Í vinnuhópnum sitja fulltrúar norrænu fjármálaráðherranna, sem skiptast meðal annars á upplýsingum um efnahagsþróun og efnahagsástand á Norðurlöndunum. Hópurinn vinnur efnahgasskýrslu "Efnahagshorfur á Norðurlöndum" fyrir haustfund fjármálaráðherra ár hvert.
Norræni efnahópurinn (NKG)
Norræni efnahópurinn vinnur að markmiðasetningu hvað varðar efni og efnasambönd sem eflt geta sjálfbæra þróun sem byggir á heilsu- og umhverfisvernd jafnt fyrir núlifandi og komandi kynslóðir.
Norræni úrgangshópurinn (NAG)
Starf norræna úrgangshópsins miðar að sjálfbærri meðhöndlun úrgangs á Norðurlöndunum og í Evrópu. Norræn þátttaka í samningu reglugerða ESB er mikilvæg. Einnig skiptir miklu máli að í reglugerðum ESB sé tekið tillit til aðstæðna á Norðurlöndunum.
Norræni vinnuhópurinn um alþjóðlegar loftslagsviðræður (NOAK)
Meginmarkmið hópsins er að stuðla að alþjóðlegu samkomulagi um loftslagsmál.
Norræni vinnuhópurinn um strjálbýl svæði (TBO)
Verkefni vinnuhóps Norrænu ráðherranefndarinnar um strjálbýl svæði er að styðja við vinnu norrænu ríkjanna að því markmiði að tryggja svæðum á Norðurlöndum sjálfbæra orku, sem eru ekki tengd við eða á mörkum orkudreifikerfisins.
Norrænn hópur skattyfirvalda
Hópurinn stendur að Norrænu skattagáttinni, en þar eru upplýsingar til almennings um skatta á Norðurlöndunum.
Norrænn vinnuhópur um matvæli og upplýsingar til neytenda (NMF)
Vinnuhópurinn ber ábyrgð á verkefnum á sviði matvæla- og neytendamála, sem felast meðal annars í lagasetningum, eftirliti, merkingum og upplýsingum til neytenda.
Norrænn vinnuhópur um næringu, mat og eiturefnafræði (NKMT)
Vinnuhópurinn ber ábyrgð á framkvæmd "Norrænnar áætlunar um bætta heilsu og lífsgæði með bættri fæðu og hreyfingu".
Norrænn vinnuhópur um örverufræði, dýraheilsu og dýravernd (NMDD)
Verkefni vinnhópsins og ábyrgðasvið tengjast örverufræði, dýraheilsu og dýravernd. Markmiðið er að tryggja árangursríkt samstarf norrænna stjórnvalda.
Norrænt tengslanet um fullorðinsfræðslu (NVL)
Tengslanetið vinnur að því að auka sýnileika færni og reynslu af fullorðinsfræðslu á Norðurlöndunum.
Ráðgjafahópur um norrænt skólasamstarf (NSS)
Ráðgjafahópurinn fjallar um leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólastigið.
Ráðgjahópur um norrænt samstarf um fullorðinsfræðslu (SVL)
Fullorðinsfræðsla er undirstaða símenntunar í norrænu samstarfi. Ráðgjafahópurinn leggur áherslu virka umræðu við alla sem hagsmuna eiga að gæta á sviðinu.
Raforkumarkaðshópurinn
Noregur, Svíþjóð, Finnland og Danmörk hafa rekið sameiginlegan raforkumarkað um árabil og eru gott dæmi um það hvernig ríki í Evrópu geta rekið raforkumarkað þvert á landamæri.. Enn er þó hægt að bæta starfsemi norræna raforkumarkaðarins.
Samstarfsnefndin um Norðurlandakennslu erlendis
Samstarfsnefndin um Norðurlandakennslu erlendis miðar að því að efla kennslu í Norðurlandamálum, um norræna menningu og samfélagsaðstæður auk þess að stuðla að því að efla áhuga erlendra háskóla og samfélaga almennt á Norðurlöndunum. Nefndin, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, styrkir norræna viðburði sem kennarar við stofnanirnar eiga frumkvæði að.
Sérfræðingahópur Norræna tungumálaráðsins (ENS)
Sérfræðingahópur Norræna tungumálaráðsins veitir ráðgjöf og leggur sérstaka áherslu á að auka tungumálaskilning barna og unglinga.