Norrænt samstarf um stefnumörkun í atvinnulífi
Skilyrði til atvinnureksturs á Norðurlöndunum eru meðal þeirra bestu í heiminum. Norðurlöndin eru hvað eftir annað í fremstu röð í viðurkenndum könnunum. Á sama tíma skapar samfélagsþróun eins og hnattvæðing, lýðfræðilegar breytingar og loftslagsbreytingar tækifæri og hættur fyrir atvinnulífið sem taka verður afstöðu til.
