Document Actions

Sækja um styrki

Menningar- og menntamálanefndin
Menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs fjallar um og gerir tillögur að pólitískum aðgerðum á sviði menningar og menntunar, þar á meðal mál er varða tungumálasamstarf, nýja miðla, færniþróun og nýsköpun á sviði menntunar.
Norræna barna- og æskulýðsnefndin (NORDBUK)
NORDBUK er ráðgefandi samræmingaraðili um öll málefni barna- og unglinga hjá Norrænu ráðherranefndinni.
Námsferðastyrkur dansk-færeyska félagsins
Námsferðastyrkir dansk-færeyska félagsins eru auglýstir í Danmörku og Færeyjum einu sinni á ári. Styrkirnir eru tveir, 10.000 danskra krónur hvor. Annar styrkurinn er ætlaður til námsferðar til Færeyja og hinn til námsferðar til Danmerkur, fyrir einstaklinga á aldrinum 18 til 30 ára. Markmið námsferðarinnar verður að vera í samræmi við markmið Dansk-færeyska menningarsjóðins.
NORDBUK: Sækja um styrk
Norræna barna- og ungmennanefndin (NORDBUK) veitir styrki til félagasamstarfs og verkefna á sviði æskulýðsmála.
Nordplus styrkjaáætlanir
Nordplus styrkir verkefni, sem hafa það að markmiði: að stuðla að framgangi norrænna tungumála og menningar, og gagnkvæmum tungumála- og menningarskilningi milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Að styðja við þróun gæða og nýsköpunar í símenntun í þátttökulöndunum með menntasamstarfi, þróunarverkfenum, því að skiptast á reynslu og tengslanetum. Að efla, þróa, læra af og miðla nýsköpunarverkefnum og ferlum á menntasviðinu með því að skiptast á reynslu kerfisbundið, eða styrkja og þróa norræna menntasamstarfið og stuðla að þróun menntasamstarfs milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Umsækjendur verða að vera stofnanir og samtök, einstaklingar geta ekki sótt um styrkina.
Norrænir lýðháskólastyrkir
Styrkirnir eru ætlaðir til að efla áhuga á norrænum lýðháskólum og auka þekkingu á norrænum tungumálum og menningu. Danskir nemendur, þá einnig nemendur frá Færeyjum og Grænlandi, geta sótt um styrki til að dvelja á lýðháskólum í öðrum norrænum ríkjum, en lýðháskóladvöl í Danmörku er ekki styrkhæf.
Styrkir sænsk-norska samstarfssjóðsins
Sænsk-norski samstarfssjóðurinn er tvíhliða, ríkisrekinn sjóður sem miðar að því að auka samstarfið milli Noregs og Svíþjóðar. Sjóðurinn á að auka gagnkvæma menningar- og upplýsingamiðlum um sænskar og norskar menningar- og samfélagsaðstæður. Sjóðurinn veitir þrjár tegundir styrkja: verkefnastyrki, listamannastyrki og dvalarstyrki. Einstaklingar, samtök og stofnanir geta sótt um styrkina.
Styrkir til lýðháskóladvalar á Norðurlöndum fyrir Íslendinga
Norræna félagið á Íslandi, fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar, veitir Íslendingum styrki til lýðháskóladvalar í öðru norrænu ríki. Einstaklingar geta sótt um styrkina.
Ungmennafélag Íslands - styrkir til dvalar á íþróttaskólum
Ungmennafélag Íslands styrkir unga Íslendinga til dvalar á íþróttaskólum á öðrum Norðurlöndum.