Um norrænt samstarf um börn og unglinga
„Norðurlönd eiga að vera besti staðurinn fyrir börn og unglinga”. Það er undirstaða norræns samstarfs um málefni barna og unglinga.
Grundvallargildi starfsins
Markmiðið með starfi í þágu barna og unglinga á Norðurlöndum er að skapa hagstæð lífskilyrði fyrir börn og unglinga og auka tækifæri þeirra til þess hafa áhrif. Starfið byggir á sameiginlegum grunngildum eins og réttlæti, jafnrétti, lýðræði, gegnsæi og þátttöku.
Börn og unglingar sem virkir þátttakendur
Norrænu samstarfi er meðal annars ætlað að skapa grundvöll vettvang fyrir börn og unglinga til hittast þvert á landamæri. Bæði í skóla- og félagastarfi. Samstarfið miðast við að börnin og unga fólkið taki virkan þátt.
Mikilvægur hluti af þessu er að auka getu barna og unglinga til að skilja tungumál hvers annars.
Norræna æskulýðsnefndin (NORDBUK) ber ábyrgð á því að málefni barna og unglinga séu á dagskrá norræns samstarfs. Það gerir NORDBUK meðal annars með því að veita styrki til norrænna samstarfsverkefna sem börn og unglingar eru virkir þátttakendur í.
NORDBUK veitir tvær tegundir styrkja: Verkefnastyrki og styrki til samstarfs milli barna- og æskulýðssamtaka.
Forgangssvið
Fjölbreytileiki og jafnrétti eru undirstaðan í barna-og æskulýðssamstarfi á Norðurlöndum,og verkefni sem geta stuðlað að þessu eru í forgangi.
Mannréttindi eru grundvöllur þessa starfs og þegar er hafinn undirbúningur að mörgum verkefnum.
Lifandi bókasafnið
„Lifandi bókasafnið" er gott dæmi um slíkt verkefni. Um er að ræða samstarf við hóp ungs fólks sem fékk mjög góða hugmynd.
Lifandi bókasafn starfar nákvæmlega á sama hátt og venjulegt bókasafn – viðskiptavinirnir koma og fá „bók” að láni í ákveðinn tíma. Það er einungis einn munur á: „Bækurnar" í Lifandi bókasafni eru fólk, og bækurnar og lesendurnir tala saman.
Bækurnar á Lifandi bókasafni eru fulltrúar hópa, sem venjulega mæta fordómum og upplifa oft misrétti og/eða félagslega útilokun.
NORDBUK og Evrópuráðið hafa unnið saman að útgáfu handbókar um þessa einstöku aðferð sem nú hefur breiðst út um allan heim.
Einnig er til vefsíða sem unga fólkið hefur sjálft sett upp með norrænni aðstoð, þar sem lesa má meira um lifandi bókasöfn um allan heim.
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Í tilefni að 20 ára afmæli barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í nóvember 2009 kemur út rit með góðum dæmum um hvernig virkja má börn í samfélagsþróun. Dæmin eru frá öllum Norðurlöndum. Ritið er unnið í nánu samstarfi við umboðsmenn barna á Norðurlöndum.
Tungumálaskilningurinn
„Norðurlönd fyrr og nú" er vefsíða fyrir börn og unglinga. Hún varð til í samstafi NORDBUK og DR með fjárhagslegum stuðningi frá Norræna menningarsjóðnum.
Á vefsíðunni eru myndskeið frá norrænum ríkissjónvarpsstöðvum. Á síðunni, sem sífellt er verið að bæta, er ætlunin að vista upplýsingar um Norðurlöndin fyrir börn og unglinga, sem nýta má í skóla og frítíma.
Jafnframt er markmiðið með síðunni að að stuðla að auknum málskilningi. Hugmyndin byggir á að síðan geti nýst sem efni í kennslu granntungumálanna.
Öll myndskeið eru á skandínavísku og textuð með skýringartextum, einnig á finnsku og íslensku.
