Opnun nýrrar vefgáttar um Norðurlönd, fyrir kennara og nemendur á aldrinum 10 - 14 ára
Norðurlöndin frá nýjum sjónarhóli! Hvernig hljómar grænlenska og er virkilega hægt að borða þurrkaða fitu? Hvernig er að búa á Íslandi eða í Ósló? Norðurlöndin fyrr og nú er ný vefgátt fyrir kennara og nemendur á aldrinum 10 - 14 ára. Þar má skoða búta úr sjónvarpsþáttum, leita upplýsinga og lesa um áhugaverða sögu Norðurlanda. Á degi skólans, 25. ágúst, gefst tækifæri á að læra meira!
