Samstarf um byggðastefnu á Norðurlöndum
Norðurlöndin eru svæði sem eru um margt ólík bæði hvað varðar lýðfræðileg og landfræðileg svæði, frá þéttbýlum borgum til strjálbýlla svæða, landbúnaðarhéraða og strandsamfélaga. Markmið svæðasamstarfs á Norðurlöndum er að auka hagvöxt og bæta lífskjör á öllum norrænum svæðum, miðað við möguleika og þarfir hvers svæðis.
Á Norðurlöndum er löng hefð fyrir samstarfi um byggðastefnu. Samstarfið byggir meðal annars á sameiginlegri sögu og menningu og því hve lík velferðarkerfin eru, auk lýðræðis. Norrænt landamærasamstarf á sér sérstaklega langa sögu, þar sem samskipti landamærasvæða og samstarf hefur gegnt mikilvægu hlutverki í því að skapa vel virk og samþætt samfélög meðfram landamærum ríkjanna.
Opinbert norrænt samstarf hefur lagt mikið af mörkum til stefnumótunar í þjóðlöndunum með kerfisbundinni miðlun upplýsinga og reynslu milli landanna á sviði byggðastefnu. Meðal annars gerir rannsóknastofnunin Nordregio norrænar rannsóknir og samanburð í háum alþjóðlegum gæðaflokki.
Samstarf á landamærasvæðum
Ár hvert veitir Norræna ráðherranefndin samstarfsstofnunum og nefndum á landamærasvæðum styrki og rekstrarfé til að stuðla að frjálsri för einstaklinga, vöru og þjónustu yfir landamæri. Styrkjunum er ætlað að tryggja að virkum svæðum sem ná yfir tvö eða fleiri lönd verði við haldið og þau þróuð til hagsbóta fyrir íbúa norrænu landamærasvæðanna. Dæmi um áherslusvið og verkefni á landamærasvæðum sem fá styrki frá Norrænu ráðherranefndinni, geta verið samstarf um þróun og notkun endurnýjanlegra orkulausna, stofnun tengslaneta fyrirtækja þvert á landamæri, samstarf á sviði ferðaþjónustu, vinna að afnámi stjórnsýsluhindrana á sviði atvinnumála og verkefni sem stuðla að nýsköpun.
Norrænt fjármagn til landamærasvæða er veitt í samræmi við norræna stefnu landamærasvæði sem samþykkt var af norrænu ríkjunum.
Norræn byggðastefna felur einnig í sér samstarf við nágranna Norðurlandanna og leggur sitt af mörkum í samstarfi um byggðastefnu í Evrópu, meðal annars með aðild að Association of European Border Regions (AEBR). Norrænu landamærasvæðin eru í dag fyrirmynd annarra landamærasvæða í Evrópu. Enn fremur hefur opinbert norrænt samstarf stuðlað að sterkri stöðu Norðurlanda í tengslum við ESB, Eystrasaltssvæðið, Norðurkollu og Norðurskautssvæðin.
Nordregio
Nordregio er norræn rannsóknamiðstöð um byggðaþróun, með áherslu á stefnumótandi rannsóknir og gagnaöflun. Nordregio var stofnuð af Norrænu ráðherranefndinni árið 1997 og er staðsett á Skeppsholmen í Stokkhólmi. Frá 1997 hefur Nordregio framleitt vísindalega grundað efni fyrir stjórnmálamenn á svæðisbundnum, landsbundnum og alþjóðlegum vettvangi og átt mikilvægan þátt í stefnumótandi umræðu í norrænu samstarfi. Hjá Nordregio fara m.a. fram rannsóknir á sviði byggðaþróunar, ýmissa mála varðandi þéttbýli og strjálbýli, lýðfræði o.fl. Jafnframt tekur Nordegio þátt í fjölmörgum verkefnum í samstarfi við aðra samstarfsaðila og rannsóknastofnanir, en það eykur breidd og víkkar sjóndeildarhring rannsókna Nordregio.
Samstarfsáætlun um byggðastefnu
Núverandi samstarfsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um byggðastefnu gildir fyrir tímabilið 2009-2012. Grundvallarsýn samstarfsáætlunarinnar er að Norðurlöndin verði leiðandi í þróun nýrrar og þróttmikillar byggðastefnu. Þetta þýðir í fyrsta lagi aukið og umfangsmeira hlutverk byggðastefnu í þróun nýskapandi Norðurlanda. Að auki hefur hún í för með sér aukna áherslu á öflugri sjálfbæra þróun í efnahags- og félagsmálum staðbundið og svæðisbundið, í þorpum, á þéttbýlli svæðum og í strjálbýli. Einnig er lögð áhersla á að rödd Norðurlandanna á sviði byggðastefnu og skipulags heyrist og sé virt á Evrópuvettvangi.
